NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 (milli kl. 9 og 18 alla virka daga) EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDDRE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Drekavelli 60, vel skipulagt 231,1 fm endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum 36,9 fm bílskúr ásamt stórum sólpalli með heitum potti, á Völlunum í Hafnarfirði. Húsið er byggt árið 2008.
Eignin samanstendur af: Forstofu, eldhúsi, gestasalerni, stofu, borðstofu, sólpalli, heitum potti, geymsluskúr, bílskúr, 4 svefnherbergjum, fataherbergi, sjónvarpsherbergi, þvottahúsi ásamt baðherbergi.
Helstu kostir- 231,1 fm endaraðhús á tveimur hæðum
- Innbyggður 36,9 fm bílskúr
- 4 svefnherbergi með möguleika á 5
- 175,4 fm sólpallur með heitum potti
- Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með útgangi út á pall
- Sjónvarpshol með útgangi á suðursvalir
- Sérþvottahús á efri hæð
- Gólfhiti á báðum hæðum
Nánari lýsing
Aðalhæð
Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskápum og flísum á gólfi. Innangengt er úr forstofu í bílskúr.
Gestasnyrting: Flísalögð í hólf og gólf, með vegghengdu salerni og innréttingu með handlaug.
Eldhús: Rúmgott eldhús með HTH-innréttingu í eikarspón, góðu skápa- og skúffuplássi og svörtum granít steinborðplötum, innbyggðum örbylgjuofni auk bakarofns í vinnuhæð, spanhelluborð, háfur og rúmgóður borðkrókur.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með gólfsíðum gluggum ásamt hornglugga. Útgangur er úr stofu á sólpall með heitum potti.
Stigi: Steyptur, teppalagður stigi með handriði úr gleri og stáli tengir hæðirnar saman.
Efri hæð(Uppgefnar stærðir í þessu söluyfirlit er samkvæmt þinglýstum teikningum)
Herbergi 1: Er 14,9 fm að stærð, með tveimur gluggum, afstúkuðu 2,9fm fataherbergi, parketi á gólfi.
Herbergi 2: Er 12,6fm að stærð með fataskáp, parket á gólfi.
Herbergi 3: Er 11,5fm að stærð, parket á gólfi.
Herbergi 4: Er 10,3fm að stærð með fataskáp, parketi á gólfi.
Sjónvarpshol: Er 15,1fm að stærð með gólfsíðum gluggum og útgangi út á suðursvalir. Parket á gólfi.
Svalir: Eru 6,5fm að stærð með fallegu útsýni til fjalla. Flota þarf gólfið á svölunum.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með glugga, rúmgóðri sturtu með glervegg, handklæðaofni, vegghengdu salerni ásamt góðri innréttingu með skolvask.
Þvottahús: Er með innréttingu yfir heilan vegg, glugga með opnanlegu fagi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vinnuborð með stálvaski.
Bílskúr og geymsla: Innbyggður 36,9 fm bílskúr með rafstýrðir bílskúrshurð, epoxy-húðuðu gólfi og innréttingu með stálvaski.
Inn af bílskúr er 6fm
geymsla með útgangi út á pall. Fyrir framan hús og bílskúr eru góð bílastæði með snjóbræðslu.
Sólpallur, garður og útisvæði: Sunnan megin við húsið er 175,4fm sólpallur að hluta til á steyptri plötu með heitum potti ásamt
geymsluskúr, en timburpalli hefur verið bætt við ásamt skjólveggjum og grill skýli yfir grill. Sunnan megin við skjólveggina er grasflötur ásamt runnum sem tilheyra eigninni.
Viðhald og endurbætur:2022 - Sólpallur stækkaður og skjólveggjum bætt við ásamt geymsluskúr við heita pottinn.
2024 - Jarðvegsskipti meðfram grasi og ný tré gróðursett.
2024 - Vegna leka á þaki var skipt um dúk ásamt einangrun og bætt við yfir dúk. Niðurföll yfirfarin og löguð eftir þörfum. Skipt um flasningar.
2024 - Plötur steyptar undir ruslaskýli og bætt við timburskýli fyrir tunnu.
2025 - Baðherbergi á efri hæð endurnýjað að hluta, skipt um flísar (dökkgráu), niðurfall í sturtu ásamt innréttingu.
2026 - Lágreist 11-12m grindverk smíðað við vesturhlið og runnar gróðursettir við göngustíg.
Staðsetning: Húsið er staðsett innst í botnlanga við Drekavelli í Hafnarfirði. Hraunvallaskóli er í um þriggja mínútna göngufjarlægð. Stutt er í matvöruverslanir og helstu þjónustu.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila (0,4% við fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. – samkvæmt gildandi gjaldskrá sýslumanns.
Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu – 69.900 kr. m.vsk.