Falleg, vel skipulögð og björt 92,3 fm. þriggja herbergja íbúð á vinsælum stað við Bólstaðarhlíð 48, 105 Reykjavík. Eignin hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. Búið að skipta um alla glugga í eigninni og endurnýja skólplagnir. Mögulegt að útbúa þriðja svefnherbergið í stofu.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Nánari lýsing:Komið er inn frá sameign inn í lítinn forstofugang með fatahengi. Rúmgott eldhús með eldri ljósri innréttingu. Búið er að endurnýja efri skápa. Baðherbergi með litlum skáp með innfelldri handlaug, baðkar með sturtu. Hjónaherbergi með nýlegum fataskápum.
Rúmgott barnaherbergi með fataskáp. Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með útgengi út á suðvestur svalir. Auðvelt er að stúka af borðstofu fyrir þriðja svefnherbergið. Á gólfum eignar er ljóst parket nema á baðherbergi, þar eru flísar. Í sameign er ágæt sér geymsla íbúðar, sameiginleg hjólageymsla ásamt þvotta- og þurrkherbergi. Um er að ræða góða eign á vinsælum stað við Bólstaðarhlíð.
Húsið var múrviðgert og málað árið 2016. Skólplagnir endunýjaðar árið 2025. Falleg sameign og vel viðhaldið hús.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.