Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Lækjartún 21 á Hólmavík, snyrtilegt og vel skipulagt 144 fm einbýlishús með bílskúr. Íbúðarhluti eignarinnar er 109,6 fm og bílskúr 34,4 fm.
Húsið er timburhús, byggt árið 1994, en bílskúrinn árið 2001.** Bókið skoðun hjá Maríu Mjöll í síma 866-3934**Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing:Forstofa er flísalögð með góðum skápum.
Eldhús er með góðri innréttingu, skápum bæði ofan og neðan borðplötu og góðu vinnuplássi. Borðkrókur er við glugga með góðu plássi fyrir eldhúsborð, dúkur á gólfi.
Stofa og borðstofa eru saman í björtu og rúmgóðu alrými með stórum gluggum. Úr stofu er útgengt á góðan timburpall og þaðan út í garð, harðparket.
Svefnherbergin eru þrjú, öll björt og með dúk á gólfum. Hjónaherbergi er með fataskáp.
Baðherbergi er rúmgott og flísalagt á gólfi. Þar er baðkar, sturta, salerni og góð innrétting með handlaug og spegli.
Þvottahús er sér, með innréttingu, vaski og góðu vinnuplássi.
Bílskúr er 34,4 fm, rúmgóður og býður upp á gott geymslu- og vinnupláss.
Við húsið er góður timburpallur og gróinn garður. Frá eigninni er fallegt og opið útsýni yfir nærliggjandi umhverfi.
Um er að ræða snyrtilega og vel skipulagða eign á góðum og fjölskylduvænum stað á Hólmavík.
Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 866-3934 eða á netfangið maria@fastborg.is.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.