Fasteignaleitin
Skráð 17. feb. 2026

Aðalstræti 2

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
441.2 m2
Verð
Tilboð
HR
Hulda Rún Rúnarsdóttir
Viðskiptastjóri
Fasteignanúmer
2001719
Landnúmer
0
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Leigulóð
Til leigu hjá Reitum: Tvær skrifstofuhæðir í Aðalstræti 2. Annars vegar 2. hæð 217,9 m2 og hins vegar 3. hæð 223,3 m2.

Tvær skrifstofuhæðir í hjarta borgarinnar. Hæðirnar skiptast í opin skrifstofurými ásamt lokuðum herbergjum, salerni og kaffikrók. Gott aðgengi er að rýminu og lyfta opnast í rýmið á þriðju hæð.

Nánari upplýsingar veitir Auðunn Sólberg, í síma 770 1018, tölvupóstur audunn@reitir.is

Aðalstræti 2, ásamt bakhúsum sem vísa að Vesturgötu kallast einu nafni Ingólfsnaust því að á þessum stað herma sagnir að Ingólfur Arnarson, fyrsti landnámsmaður Íslands, hafi dregið skip sín í naust og voru tóttir naustsins enn sýnilegar á 18. öld.
Eftir að kaupstaður myndaðist inni í sjálfri Reykjavík um 1780 reisti fyrsti kaupmaðurinn hús sín einmitt á þessari lóð. Sá var danskur og hét Sünckenberg. Áður voru verslunarhús á eyjum úti fyrir ströndinni (Hólmskaupstaður).
Núverandi framhús, sem snýr að Aðalstræti, er reist árið 1855, en bakhúsin sem voru pakkhús kaupmannsins eru að mestum hluta reist árið 1905.
Þá voru húsin í eigu fyrirtækisins H. P. Duus sem rak mikla verslun og skútuútgerð í Reykjavík. Öll húsin voru gerð upp í samræmi við upphaflega gerð þeirra á árunum 1999 til 2003 og þau tengd með tengibyggingu úr gleri.


Reitir bjóða framsýnum fyrirtækjum klæðskerasniðið atvinnuhúsnæði til leigu. Reitir byggja á arfleifð umsvifa sem hófst með byggingu Kringlunnar árið 1987.
Innan eignasafnsins á annan hundrað fasteignir með um 700 leigurýmum auk metnaðarfullra þróunarverkefna. 
Á síðari árum hafa Reitir hlúð að sögufrægum byggingum og staðið þannig vörð um íslenskan menningararf á sama tíma og horft er til sjálfbærrar framtíðar.

Kynntu þér þjónustu Reita og fleira skrifstofuhúsnæði til leigu á www.reitir.is/skrifstofur.

Tegund: skrifstofurými
Afhending: Afhending samkomulag
ID: 28
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Koparslétta 10
Opið hús:31. maí kl 15:00-15:20
Skoða eignina Koparslétta 10
Koparslétta 10
162 Reykjavík
59.1 m2
Atvinnuhúsn.
1
574 þ.kr./m2
33.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 10 - 119
Vesturbakki 10 - 119
815 Þorlákshöfn
58.8 m2
Atvinnuhúsn.
440 þ.kr./m2
25.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 10 - 101
Vesturbakki 10 - 101
815 Þorlákshöfn
53.1 m2
Atvinnuhúsn.
556 þ.kr./m2
29.500.000 kr.
Skoða eignina Lindargata 28
Opið hús:03. júní kl 18:00-18:20
Skoða eignina Lindargata 28
Lindargata 28
101 Reykjavík
51.2 m2
Fjölbýlishús
111
1072 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin