Miklaborg kynnir: Snyrtilegt og töluvert endurnýjað endaraðhús á þremur pöllum með innbyggðum bílskúr samtals um 200 fm. Í húsinu eru 5 svefnherbergi, stór stofa, baðherbergi og snyrting, rúmgott eldhús, vinnuherbergi, þvottahús og geymsla. Fjölskylduvænt hús á rólegum stað í Seljahverfi!
Nánari lýsing:
Miðpallur - Inngangur í húsið og þar er forstofa með fataskáp, gott svefnherbergi og falleg gestasnyrting.
Efri hæð - Gengið upp 3 tröppur upp í stóra og rúmgóða stofu og borðstofu. Upptekin loft eru í stofunni sem er björt með gluggum á tvo vegu. Útgengi er út á suðvestur svalir frá stofu. Eldhús er inn af stofu er sérlega rúmgott og er nýlega endurnýjað. Mjög gott skápa- og skúffupláss en borðkrókur er innst í eldhúsinu. Tveir ofnar í innréttingu.
Neðri hæð - Stigi frá miðpalli. Rúmgott baðherbergi bæði með baðkari og sturtuklefa, gólf og veggir eru flísalagðir, gólfhiti og snyrtileg innrétting með vask. Fjögur svefnherbergi þar af hjónaherbergi með fataskápum en útgengi er frá hjónaherbergi út á afgirtan sólpall. Pallurinn snýr í suðvestur og er með hliði sem er aðgengilegt frá enda hússins. Á hæðinni er þvottahús með góðum innréttingum og vask í innréttingu og loftræstingu. Inn af þvottahúsi er rúmgóð geymsla. Lítið vinnuherbergi gluggalaust er á milli þvottahúss og herbergis. Gólfefni hússins er að hluta til harðparket og að hluta flísar en gólfefnin eru frekar nýleg. Útihurð og svalahurðir eru nýlegar. Bílskúr er skráður 19,2 fm og er hann með rafdrifinni bílskúrshurð en auka geymslurými er á millilofti bílskúrsins. Snjóbræðsla er í aðkomu að húsi og bílskúr. Lóðin er frekar lítil en trjágróður er götumegin við húsið.
Ástandslýsingu seljanda er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni en ekkert húsfélag er starfandi í lengjunni.
Eignin er skráð 161,4 fm samkvæmt HMS en búið er að stækka hana sem nemur innri hluta jarðhæðar þar sem eitt svefnherbergi er, vinnuherbergi, þvottahús og geymsla en um er að ræða stækkun upp á um 40 fm.
Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign á rólegum stað í Seljahverfi, skóli og leikskóli í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 02/02/2019 | 52.900.000 kr. | 68.500.000 kr. | 161.4 m2 | 424.411 kr. | Já |
| 16/11/2017 | 37.850.000 kr. | 65.000.000 kr. | 161.4 m2 | 402.726 kr. | Já |
| 02/07/2013 | 30.250.000 kr. | 39.000.000 kr. | 161.4 m2 | 241.635 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
800 | 184,6 | 104,9 | ||
220 | 107,7 | 99,9 | ||
109 | 94,2 | 64,9 | ||
200 | 120,4 | 119,9 | ||
108 | 166,2 | 124,9 | ||
210 | 136,2 | 129,9 |