Fasteignaleitin
Skráð 12. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Smyrilshlíð 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
200.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
746.514 kr./m2
Fasteignamat
107.900.000 kr.
Brunabótamat
81.130.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2020
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2509173
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
Nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Elka, lgf., s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna virkilega fallega og vandaða 3ja herbergja íbúð með 47 fm bílskúr og tveimur baðherbergjum við Smyrilshlíð 7 á Hlíðarenda, við rætur Öskjuhlíðar í Reykjavík.
Birt stærð skv. FMR er 153,8 m², þar af geymsla 30,3 m² (innaf bílskúr) og íbúð 123,5 m².  Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu sem er lokað af með hurð, stærð þess rýmis er 47 m² og er ekki skráð inní fermetratölu eignar.
Íbúð merkt 405 er með 2 svefnherbergjum, fataherbergi, 2 baðherbergjum, sér þvottahúsi og góðum svölum.  
-- Sjón er sögu ríkari ---  Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings og afhendist fullbúin með gólfefnum, ísskáp/frysti, uppþvottavél, ofni, helluborði og háfi.
Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá Elku Guðmundsd., lgf., s. 863-8813, elka@fstorg.is - Guðný Ösp Ragnarsdóttir lgf. í síma 665-8909 // gudny@fstorg.is
eða öðrum sölumönnum hjá TORGI, Sími: 520-9595 / torg@fstorg.is

Nánari lýsing;
Gengið er inní íbúð nr. 405 af svölum, góð forstofa með gestasalerni.  Góðir skápar.
Virkilega opið, bjart og rúmgott alrými.  Tvö svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi sem lokað er af með rennihurð.  Góðar hornsvalir ásamt sameiginlegum þaksvölum með stórglæsilegu útsýni.
Vönduð íbúð, frábær staðsetning, fallegar gönguleiðir, íþróttir, samgöngur, iðandi mannlíf, skóla og stóra vinnustaði.  Íbúðin er tilbúin til afhendingar við undirritun kaupsamnings.

Innréttingar eru mjög vandaðar frá danska fyrirtækinu JKE og ná upp í loft til þess að hámarka geymslurými. 
Borðplötur eru úr einstaklega fallegum og sterkum terrazzo quartzborðplötum í eldhúsi og á baði frá Granítsmiðjunni. Rafmagnstæki eru frá Miele. 
Á baðherbergi og þvottahúsi eru fallegar flísar í ljósgráum tón. Blöndunartæki, handlaugar og salerni er frá Tengi, flísar frá Álfaborg. 
Aukin lofthæð er í íbúðinni (2,80 metrar) og gólfsíðir gluggar. Lýsing er hönnuð af Lumex og er með free@home rafstýringu frá ABB em gerir þér kleift að búa til ljósasenur og slökkva öll ljós með einum takka

Húsin eru hönnuð af Alark arkitektum og innanhússhönnun var í höndum M/STUDIO Reykjavík þar sem mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.   
Efnið í innréttingunum er annars vegar ekta eikarspónn og hins vegar PU-lakk, sem er eitt það sterkasta á markaðnum í dag. Fataskápar í svefnherbergi og forstofu sem og baðinnrétting eru í sama efni og eldhúsinnrétting.
Allur frágangur er afar vandaður og efnisval mjög stílhreint. Aukin lofthæð er í íbúðum (2,8m) og vandaðir gólfsíðir Velfac gluggar.  
Hefðbundið ofnakerfi er í húsinu. Lýsing er hönnuð af Lumex.  Í öllum íbúðum er Free@home rafstýring frá ABB. Grunnkerfið fylgir með sem gerir notandum kleift að búa til ljósasenur og slökkva öll ljós með einum takka. Hægt er að bæta við kerfið eins og hver vill og vera með fullkomið hússtjórnarkerfi í íbúðinni. Forritið er mjög þægilegt og einfalt í notkun.
Sér bílastæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum. Sér heimtaug er vegna hleðslu rafbíla þannig að ekki verður truflun á rafmagni hússins við hleðslu bíla. 

Garðurinn er einstaklega fallegur og skjólgóður.  Hann er lokaður af með húsunum sem gefa gott skjól og frið frá iðandi umferð miðbæjarins. Í garðinum eru skemmtilegir runnar og tré ásamt borðum og bekkjum og upplýstu leiksvæði fyrir börn, sem gerir svæðið mjög fjölskylduvænt.   Garðurinn er glæsilegur og einstakur sælureitur íbúa.   Í stigagöngum eru stílhreinar flísar í anddyrum og inngöngum en hlýlegt og slitsterkt teppi á stigum og göngum á efri hæðum.
Í öllum íbúðum er vandað ál- og trégluggakerfi frá Velfac. Allt gler er háeinangrandi fyrir hita og hljóði svo að öll hljóð að utan eiga ekki greiða leið inn í íbúðirnar.
Myndavéladyrasími er í öllum stigagöngum og aðgangsstýrt aðgengi er inn í húsið, sem þýðir að það er lyklalaust. Hurð út úr garði er einnig aðgangsstýrð og því garðurinn læstur fyrir utanaðkomandi aðilum.
Bílakjallarinn er á tveimur hæðum með góðri náttúrulegri loftun og beinu aðgengi í alla stigaganga. Aðgangstýring er í bílageymslunni sem og í öllu húsinu sem auðveldar aðgengi. Sérstök rafmagnsheimtaug er í bílakjallarann sem tryggir öllum aðgengi að rafmagni fyrir rafmagnsbíla.  Sérhannaðir eldvarnargluggar eru þar sem við á og standast byggingareglugerð og klæðningin utan á húsinu uppfyllir ströngustu kröfur Mannvirkjastofnunnar um brunavarnir og gæði.  Gangstéttin umhverfis húsið og valdar leiðir inn í garðinum er upphitaðar.  Bílskúrar fylgja nokkrum íbúðum og skilast þeir með fjarstýrðri bílskúrshurð, gönguhurð og brunavarnarkerfi.

Nánar um hverfið:
102 Hlíðarendi er á frábærum stað þar sem stutt er í fjölmenna vinnustaði, skóla og leikskóla. Má þar nefna Landspítalann, Íslenska erfðagreiningu, HR og HÍ, Austubæjarskóla, Hlíðaskóla, Tækniskólann, Kvennaskólann, MH og MR.
Stutt er í alla helstu þjónustu í miðbænum, m.a. matvöruverslanir, sérverslanir, Kringluna, Hafnartorg, Laugaveginn, fjölda veitingastaða, heilsugæslu, LSH, opinberar stofnanir og svo mætti lengi telja. Fjölbreytt afþreying er í næsta nágrenni við 102 Hlíðarenda. Stutt er í mannlíf miðborgarinnar þar sem má finna listasöfn, leikhús, veitinga- og skemmtistaði. Stutt er í Tjörnina, Klambratún, Öskjuhlíð, Nauthólsvík, Hljómskálagarð, Perluna og Hörpuna svo fátt eitt sé nefnt. Ekki þarf að leita langt yfir skammt til að finna sér góða og skemmtilega hreyfingu í nánasta umhverfi svæðisins. Má þar nefna frábæra íþróttaaðstöðu Vals, Mjölni og WorldClass ásamt siglingasvæði, sjóböðum og strandlífi. Auk þess eru skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir allt um kring.

Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá Elku Guðmundsd., lgf., s. 863-8813 eða elka@fstorg.is eða öðrum sölumönnum hjá TORGI, Sími: 520-9595 / torg@fstorg.is

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2020
47 m2
Fasteignanúmer
2509173
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B3
Númer eignar
8
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
4.980.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarfótur 19, ib 508
Bílskúr
Bílastæði
Hlíðarfótur 19, ib 508
102 Reykjavík
173.3 m2
Fjölbýlishús
413
825 þ.kr./m2
142.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 19, ib 507
Bílskúr
Bílastæði
Hlíðarfótur 19, ib 507
102 Reykjavík
144.7 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 1
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Haukahlíð 1
Haukahlíð 1
102 Reykjavík
151.6 m2
Fjölbýlishús
423
923 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 7
Bílskúr
Bílastæði
Opið hús:17. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Smyrilshlíð 7
Smyrilshlíð 7
102 Reykjavík
200.8 m2
Fjölbýlishús
312
747 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin