Fasteignaleitin
Opið hús:19. okt. kl 17:30-18:00
Skráð 16. okt. 2026

Víðivangur 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
67.5 m2
3 Herb.
Verð
56.800.000 kr.
Fermetraverð
841.481 kr./m2
Fasteignamat
50.600.000 kr.
Brunabótamat
35.900.000 kr.
Mynd af Halldór Kristján Sigurðsson
Halldór Kristján Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1982
2. hæð
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2080572
Landnúmer
122927
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Nýlegir að hluta
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
***Tilbúin til afhendingar við kaupsamning***

Halldór og Skeifan kynna í einkasölu: Virkilega skemmtilega og vel skipulagða 67,5 fm, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð við Víðivang 3 í Hafnarfirði, merkt 20203

Íbúðin er einstaklega vel skipulögð með björtu alrými, skjólgóðum svölum og flottu flæði. Heildarstærð eignarinnar er 67 m², þar af er geymsla skráð 6,2 m² 

Nánari lýsing:
Forstofa & Gangur: Flísalögð með dökkum náttúruflísum sem flæða áfram inn í hluta annara íbúðarinnar. Rúmgóður fataskápur með innbyggðum skolvaski er á gangi.
Eldhús: Snyrtileg eikarinnrétting með góðu skápaplássi, grárri borðplötu og flísum á milli skápa. Innbyggður ofn, helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi tryggir flotta dagsbirtu og skemmtilegt útsýni. Eyja/innrétting skilur að eldhús og stofu.
Stofa / Borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Rýmið rúmar vel bæði setustofu og borðkrók. Gólf er flísalagt og parketlagt að hluta.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott með vönduðu eikarparketi á gólfi og vönduðum, samfelldum fataskáp. Úr herberginu er útgengt á svalir.
Baðherbergi: Smekklega innréttað og flísalagt í hólf og gólf. Dökkar flísar á gólfi og við baðkar en ljósar flísar á veggjum að hluta. Vegghengt salerni, skápur undir handlaug og speglaskápur með innfelldri lýsingu. Baðkar með sturtuaðstöðu og glervegg. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla er 6,2m² í sameign
Þvottahús/þurrkherbergi: Er í sameign.
Hjólageymsla: Er í sameign.

Helstu framkvæmdir og viðhald á undanförnum árum:
Á árunum 2024 og 2025 Gluggar og hurðir: Skipt var um stóran hluta glugga, einnig flestar svalahurðir hússins.
Steyptir fletir: Gengið var í sprunguviðgerðir á útveggjum.
Málun: Húsið málað að hluta.
Staðsetning og nærumhverfi:

Eignin er vel staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Stutt er í leik- og grunnskóla, matvöruverslanir og aðra helstu þjónustu. Víðistaðatún er í næsta nágrenni og býður upp á fallegt útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir HALLDÓR / Sími: 618-9999 / HALLDÓR@SKEIFAN.IS

Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 kr fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Skeifan fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/08/201720.300.000 kr.31.000.000 kr.67.5 m2459.259 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 8
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 17:00-17:40
Skoða eignina Áshamar 8
Áshamar 8
221 Hafnarfjörður
72,6 m2
Fjölbýlishús
211
825 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Álalækur 11
Skoða eignina Álalækur 11
Álalækur 11
800 Selfoss
63,9 m2
Fjölbýlishús
211
681 þ.kr./m2
43.500.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 4A
Skoða eignina Tryggvagata 4A
Tryggvagata 4A
101 Reykjavík
69,2 m2
Fjölbýlishús
111
Fasteignamat 67.900.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Snorrabraut 62
Skoða eignina Snorrabraut 62
Snorrabraut 62
105 Reykjavík
52,6 m2
Fjölbýlishús
211
1158 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin