Fasteignaleitin
Skráð 28. júlí 2026

SPÁNAREIGNIR - Altaona Golf

Nýbygging • EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
105.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
56.500.000 kr.
Fermetraverð
534.886 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Byggt 2026
Garður
Svalir
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
105210626
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Optional solarium
Upphitun
Cooling/heating
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEG NÝ EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Í ALTAONA SPORTS & WELLNESS RESORT* *EINKASUNDLAUG – GOLF – HEILSA – NÁTTÚRA – LÚXUSLÍFSSTÍLL*
Falleg og einstaklega vel hönnuð einbýlishús á einni hæð í hinu glæsilega Altaona Sports & Wellness Resort í Murcia. Hér er um að ræða nútímalega og vandaða eign þar sem áhersla er lögð á birtu, rými og einstaklega góða tengingu á milli inni- og útisvæða. Húsin eru staðsett í fallegu og öruggu umhverfi við glæsilegan 18 holu golfvöll, umkringt náttúru og fjöllum, þar sem kyrrð og lífsgæði eru í fyrirrúmi.  Húsin eru 105.63 fm að stærð, 3 svefnherb. + 2 baðherb. + gestasnyrting. Rúmgóð einkalóð með einkasundlaug, garði og veröndum.

ALLAR UPPLÝSINGAR VEITA:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.  +354 893 2495.  adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali.  +34 615 112 869.  berta@spanareignir.is.


FRÁBÆRT SKIPULAG
Húsin eru hönnuð með nútímalegan lífsstíl í huga þar sem stofa, borðstofa og glæsilegt eldhús mynda bjart og rúmgott opið alrými með stórum gluggum og beinu útgengi út á verönd og sundlaugarsvæði.
Eignirnar bjóða upp á:
3 rúmgóð svefnherbergi
2 glæsileg baðherbergi + gestasnyrtingu
Bjarta stofu og borðstofu í opnu rými
Vandað ítalskt hönnunareldhús með innbyggðum heimilistækjum
Gólfhita
Loftkælingu með varmadrifnu kerfi (Aerothermal)
Einkasundlaug
Fallega hannaðan einkagarð
Rúmgóðar verandir
Einkabílastæði inni á lóð

ÚTISVÆÐI OG LÍFSSTÍLL
Hér nýtur þú hins sanna Miðjarðarhafslífs með glæsilegum útisvæðum sem henta fullkomlega til afslöppunar og samveru.
Einkasundlaug
Sólríkar verandir
Fallegur einkagarður
Rólegt og öruggt umhverfi

ALTAONA SPORTS & WELLNESS RESORT
Altaona er eitt af eftirsóttustu golf- og heilsusvæðum Spánar og sameinar golf, íþróttir, náttúru og vellíðan á einstakan hátt.
Á svæðinu er meðal annars:
18 holu golfvöllur sem fljótlega verður 27 holu völlur
Tennis- og padelvellir
Göngu- og hjólaleiðir
Veitingastaðir og þjónusta
WOW Longevity Centre, heilsugæsla með góðu aðgengi að enskumælandi læknum þar sem áhersla er lögð á heilsu og lífsgæði
Lokað og vaktað samfélag með öryggisgæslu
Aðeins:
10 mínútur frá Corvera-flugvelli
45-50 mínútur frá Alicante-flugvelli
15 mínútur frá miðborg Murcia
20 mínútur frá fallegum ströndum Miðjarðarhafsins.

VERÐ
3 svefnherbergi • 2 baðherbergi + gestasnyrting • 105.63 fm
Verð: 389,900 evrur (56,535,500ISK, gengi 1 evra = 145ISK) + kostnaður við kaupin.
Möguleiki að bæta við þaksvölum gegn auka gjaldi.

ÖRYGGI VIÐSKIPTAVINARINS:
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá árinu 2001.

Löggiltur fasteignasali með réttindi á Íslandi og Spáni.
Aðstoð við fjármögnun hjá spænskum bönkum.
Aðstoð við skoðunarferðir og þátttaka í kostnaði ef af kaupum verður.
Örugg og fagleg þjónusta frá fyrstu skoðun þar til lyklar eru afhentir.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

KOSTNAÐUR VIÐ KAUP
10% IVA (spænskur virðisaukaskattur)
Um 3% annar kostnaður vegna kaupanna
Samtals um 13%

EIGINLEIKAR: Nýbygging, Einbýlishús á einni hæð, 3 svefnherbergi,  Einkasundlaug, Einkagarður, Verandir, Gólfhiti, Loftkæling, Golf, Heilsuresort, Öryggisgæsla, Einkabílastæði
SVÆÐI: Murcia, Altaona Sports & Wellness Resort, Costa Cálida, Spánn

ALTAONA SPORTS & WELLNESS RESORT – LÍFSGÆÐI, HEILSA OG ÖRUGG FJÁRFESTING
Altaona Sports & Wellness Resort er eitt af eftirsóttustu nýbyggingarsvæðum Spánar og staðsett í Murcia, aðeins 10 mínútur frá Corvera-flugvellinum, 45-50 mínútur frá Alicante-flugvellinum, 15 mínútur frá miðborg Murcia og 20 mínútur frá fallegum Miðjarðarhafsströndum.
Svæðið sameinar einstakan Miðjarðarhafslífsstíl, fallega náttúru og fyrsta flokks aðstöðu fyrir þá sem vilja njóta lífsins allt árið um kring eða fjárfesta í góðri fasteign.
HEILSA, LÍFSGÆÐI OG ÍÞRÓTTIR
Altaona er mun meira en golfsvæði. Hér er lögð áhersla á heilbrigðan og virkan lífsstíl með:
18 holu golfvelli, fljótlega 27  holur
Tennis- og padelvöllum
Göngu- og hjólaleiðum
Líkamsrækt og veitingastöðum
WOW Longevity Resort, þar sem áhersla er lögð á heilsu, vellíðan og langlífi
Aðeins um 10 mínútur frá einu fullkomnasta háskólasjúkrahúsi Spánar
AF HVERJU AÐ FJÁRFESTA Í ALTAONA?
✔ Einstök staðsetning með stutt í tvo alþjóðaflugvelli, borgarlíf og fallegar strendur.
✔ Lokað og öruggt samfélag með öryggisgæslu allan sólarhringinn.
✔ Mikil eftirspurn eftir vönduðum eignum til eigin nota og útleigu.
✔ Takmarkað framboð nýbygginga sem styður við langtímaverðmætaaukningu.
✔ Fallegt náttúruumhverfi við El Valle þjóðgarðinn, þar sem ríkir kyrrð og næði og ekki byggt of þétt.
Altaona Sports & Wellness Resort er einstakur staður fyrir þá sem vilja sameina framúrskarandi lífsgæði, virkan lífsstíl og trausta fasteignafjárfestingu á einum mest spennandi vaxtarkjarna suðausturhluta Spánar.

iginleikar: útsýni, air con, golf, einkasundlaug, ný eign, stæði á lóð, stór lóð,
Svæði: Costa Blanca, Murcia, Altaona,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut 21
Á einni hæð
Skoða eignina Vetrarbraut 21
Vetrarbraut 21
815 Þorlákshöfn
95.9 m2
Raðhús
313
750 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 16
Skoða eignina Suðurgata 16
Suðurgata 16
300 Akranes
113.5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
554 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Miðstræti 10 LAUS 15. SEPT
Efsta hæð
Miðstræti 10 LAUS 15. SEPT
740 Neskaupstaður
102.8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
424
452 þ.kr./m2
46.500.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 5
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:12. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Sjávarborg 5
Sjávarborg 5
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin