**Opið hús mánudaginn 13. júlí milli kl. 17:00 og 17:30**
Upprunaleg rúmgóð og björt hæð með bílskúr í Álfheimum. Góð staðsetning í grónu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, íþróttir og skóla. Miklar utanhús endurbætur hafa farið fram á eigninni síðustu árin Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 164,5m², þar af er geymsla skráð 6m² og bílskúr skráður 36,4m².
Eignin skiptist í forstofuhol, eldhús, stofa og borðstofa, fjögur herbergi, baðherbergi, geymslu og bílskúr.
Komið er inn í
forstofugang frá snyrtilegu sameiginlegu stigaholi.
Rúmgóð
stofa og
borðstofa með gluggum á tvo vegu.
Eldhús er rúmgott með gamalli innréttingu, góður borðkrókur við glugga.
Hjónaherbergi með nýlegum fataskápum. Frá hjónaherbergi er gengið út á svalir.
Þrjú minni
herbergi, öll með fataskápum.
Baðherbergi er með baðkari, salerni og handlaug. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Í sameign eru
þvottahús þar sem hver íbúð hefur sína þvottavél. Í kjallara eru
sérgeymsla íbúðar.
Bílskúr fylgir íbúðinni þar er rafmagn, ofnar og kalt vatn, gluggar og gönguhurð frá garði, gryfja er í bílskúrnum.
Á síðustu 6-7 árum er búið að endurnýja neysluvatnslagnir að baðherbergi, endursteina húsið, skipta um alla glugga íbúðar og útihurð, þakjárn og pappa, endurnýja drenlagnir og endurnýja rafmagnstöflu í sameign.
Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is