LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali, kynna glæsilega þriggja herbergja íbúð ásamt stæði í bílakjallara í nýlegu fjölbýli við Skógarveg 8 í Fossvogsdalnum í Reykjavík. Vandaðar innréttingar, steinn á borðum, gólfhiti, myndavéladyrasími. Tvö svefnherbergi, eldhús og stofa í opnu rými með útgengi á rúmgóðar svalir. Fataherbergi er inn af hjónaherbergi. Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Allir gluggar eru ísteyptir timbur-álgluggar. Falleg íbúð í rótgrónu hverfi í Fossvoginum þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu. Fallegar gönguleiðir allt í kring. NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ:
Láru Þyri Eggertsdóttur, löggiltum fasteignasala í síma 899-3335 eða lara@fastlind.isÍbúð 206, Skógarvegi 8:Þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með 6,2 fm svölum.
Stærð: 78,8 fm, þar af 10,2 fm geymsla í sameign .
Stæði í bílageymslu merkt B-06 fylgir eigninni.Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, vönduð innrétting með ljúflokubúnaði á skúffum og skápum, steinn á borðum og á milli skápa. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Stofa: Parket á gólfi, Útgengi úr stofu á 6,2 fm norðursvalir. Eldhús og stofa eru í opnu rými.
Hjónaherbergi með fataherbergi, parket á gólfi. Fallegir skápar frá Aukaherbergi: Fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, vönduð innrétting með ljúflokubúnaði, sturta með sturtugleri, upphengt salerni, handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting í kringum vélar.
10,2 fm sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Skógarvegur 6-8 eru tvö fjögurra hæða hús sem standa ofan á steyptum, sameiginlegum kjallara með geymslum og bílastæðum. Húsið er steinsteypt, eingangrað að utan með steinull og klætt að stærstum hluta með álklæðningu, timburklæðning er inná flestum svölum. Allir gluggar eru ísteyptir timbur-álgluggar með K-gleri. Stigahús eru teppalögð en andyri flísalögð með hálkufríum flísum.
Byggingaraðili er Dverghamrar ehf. Fyrirtækið hefur lagt áherslu á byggingu íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis og hefur byggt upp yfir 40 ára reynslu á því sviði.
Arkitekt hússins er Guðmundur Gunnlaugsson hjá Archus ehf. Raflagnahönnun var unnin af Raflausnum. Lagnahönnun og burðarþolshönnun var unnin af verkfræðistofunni New Nordic Engineering.
Allar nánari upplýsingar veitir
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.isÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900.- með vsk.