Fasteignaleitin
Skráð 13. júlí 2026

Naustavör 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
90 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
1.021.111 kr./m2
Brunabótamat
63.800.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
23492245
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun og Davíð Matthíasson, lögg. fasteignasali 898-1713 / david@landmark.is kynna í einkasölu:
***STÓRGLÆSILEG ÚTSÝNISÍBÚÐ ***


Stórglæsileg og einstaklega vönduð tveggja herbergja 90 fm íbúð á efstu hæð í þriggja hæða lyftuhúsi, með eftirsóttu útsýni við Naustavör 10, Kópavogi. Bílastæði eru vel staðsett í lokaðri bílageymslu og rúmgóð sérgeymsla í sameign fylgir. Frágangur lóðar er til fyrirmyndar með fallegum gróðri, stétt að húsinu er með snjóbræðslu og kvöldlýsingu. Myndavélarsími er í húsinu. Húsið er byggt af BYGG.

✅ Glæsileg íbúð með einstöku útsýni
✅ Mikil lofthæð.
✅ Einstakt útsýni, til fjalla og sjávar.
✅ Stæði í lokaðri bílageymslu
✅ Falleg aðkoma og snyrtileg sameign.


Nánari lýsing
Forstofa: Rúmgóð og björt með góðum fataskáp, gegnheilt viðarparket á gólfi.
Alrými: Stofan og borðstofan mynda opið og bjart rými með stórum gluggum sem hleypa góðri birtu inn, hátt til lofts, gegnheilt viðarparket á gólfi. Útgengt er á rúmgóðar svalir með stórfenglegu útsýni yfir smábátahöfnina, Fossvoginn, Öskjuhlíðina, að Perlunni og víðar.
Eldhús: Stílhreint og opið eldhús með fallegri vandaðari eldhúsinnréttingu frá Brúnás og góðu skápaplássi, gegnheilt viðarparket á gólfi. AEG bakarofn og helluborð ásamt örbylgjuofni, stál gufugleypir og innbyggðri þvottavél.
Svefnherbergi: Hjónaherbergið er sérlega rúmgott með gegnheilu viðarparketi á gólfi og fataskáðum með lýsingu.
Baðherbergi: Er flísalagt á gólf og veggi, rúmgóð  walk-inn sturta með glerþili, upphengdu salerni og fallegri innréttingu. 
Sérgeymsla íbúðar er staðsett í sameign um 9,0 fm að stærð.
Þvottahús: Er innan íbúðar með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð með vaski og útloftun.
Bílskúr: Íbúðar er staðsett í upphitaðri bílageymslu með sérmerktu stæði. Búið er að leggja hleðslu fyrir rafbíla.
Íbúðin er með innbyggðri led-lýsingu í loftum og aukinni lofthæð.

Staðsetning
Eignin er staðsett í nýju og fallegu hverfi með nálægð við náttúru, göngu/hjólaleiðir og fallegt útisvæði. Húsið er vandað og glæsilegt með lyftu og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Þetta er einstakt tækifæri fyrir þau sem vilja sameina þægindi og náttúru á einstakan hátt.

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Sækja HÉR söluyfirlit.

Um er að ræða afar vandaða og fallega tveggja herbergja íbúð á þessum eftirsótta stað við sjávarsíðuna á Kársnesinu í Kópavogi. Næg bílastæði eru fyrir utan húsið. Göngu og hjólaleiðir og einstakt umhverfi.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Davíð Matthíasson, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 898-1713 / david@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vallakór 6
Bílastæði
Opið hús:15. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vallakór 6
Vallakór 6
203 Kópavogur
84.5 m2
Fjölbýlishús
312
875 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Ársalir 5
IMG_3673.JPG
Skoða eignina Ársalir 5
Ársalir 5
201 Kópavogur
113.7 m2
Fjölbýlishús
413
853 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 18
Bílskúr
Opið hús:16. júlí kl 12:15-12:45
Háaleitisbraut 18
108 Reykjavík
135.8 m2
Fjölbýlishús
413
631 þ.kr./m2
85.700.000 kr.
Skoða eignina Gráhella 70
Skoða eignina Gráhella 70
Gráhella 70
800 Selfoss
93.4 m2
Raðhús
413
652 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin