** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Eignin er laus til afhendingar ** Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 127,9 m2, 4ra herbergja endaíbúð á 1. hæð ásamt bílastæði í bílakjallara í lyftuhúsi við Tröllateig 24 í Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, hol, eldhús, stofu og borðstofu. Tvær sérgeymslur í sameign. Fallegt útsýni. Gott skipulag. Eignin er staðsett rétt við miðbæ Mosfellsbæjar, stutt er í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu Eignin er skráð 127,9 m2, þar af íbúð 116,2 m2 ásamt 7,9 m2 geymslu í kjallara og bílastæði merktu B19 í bílageymslu og 3,8 m2 geymslu innaf bílageymslu. Eignin er upphaflega teikuð með tveimur svefnherbergjum en í dag eru hún með þremur svefnherbergjum.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa er með parketi á gólfi. Búið er að búa til herbergi inn af stofu sem er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir.
Eldhús er með U-laga innréttingu. Í innréttingu er helluborð, vifta og ofn. Gluggar á tvo vegu sem gerir rýmið bjart og skemmtilegt.
Gangur/hol er með plássi fyrir vinnuaðstöðu og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr.1 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi. Var hluti af stofu áður.
Baðherbergi er flísalagt með vegghengdu salerni, innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vaski, hillum og vinnuborði.
Tvær sérgeymslur fylgja íbúðinni. Skráðar 7,9 m2 og 3,8 m2. Önnur geymslan er inn af bílastæðinu í bilageymslunni með mikilli lofthæð og stórri rafdrifinni hurð. Hin geymslan er á geymslugangi í sameign.
Íbúðinni fylgir
bílastæði í bílageymslu. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi. Í bílageymslunni er snyrtileg og rúmgóð aðstaða til að þvo bíla. Í sameign hússins er sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Myndvélakerfi er í sameign.
Tröllateigur 20-24 eru 3-4ra hæða fjölbýli með alls 34 íbúðum.
Verð kr. 79.900.000,-