Fasteignaleitin
Opið hús:16. ágúst kl 16:00-16:30
Skráð 28. júní 2026

Hlíðarbyggð 35

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
194 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
177.500.000 kr.
Fermetraverð
914.948 kr./m2
Fasteignamat
135.400.000 kr.
Brunabótamat
103.400.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1979
Garður
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2070460
Landnúmer
118692
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Myndaðar/Sagt í lagi
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Gólfhiti og ofnakerfi
Inngangur
Margir inngangar
Nýtt á skrá! Hlíðarbyggð 35 Garðabæ - Frábært og mikið endurnýjað fjölskylduhús með studioíbúð inn af bílskúr.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt, vel skipulagt og bjart 194,0 fermetra raðhús með aukaíbúð/studioíbúð og bílskúr við Hlíðarbyggð 35 í Garðabæ. Glæsilegar verandir beggja vegna við húsið þar sem sólar nýtur frá morgni til kvölds. Heitur pottur (hitaveitu) er staðsettur á verönd í bakgarði. Hellulögð bílastæði (rúmar fjórar bifreiðar) fyrir framan hús. Snjóbræðsla undir stétt að húsi og hluta af bílastæðum (fyrir framan bílskúr).

Aðalhæð skiptist í: Forstofu, sjónvarpsstofu með útgengi í bakgarð, rúmgott eldhús með borðplássi, stofu sem rúmar vel setustofu og borðstofu, svefnherbergisgang, hjónaherbergi, 2 barnaherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu. Neðri hæð skiptist í: Bílskúr og fyrir innan bílskúr er góð studioíbúð sem skiptist í opið rými sem nýtist sem stofa/svefnpláss (tengingar fyrir eldhúsi til staðar) og baðherbergi.

Eignin hefur verið endurnýjuð töluvert á undanförnum árum. Þak var endurnýjað á húsinu fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Á sama tíma var útidyrahurð, hurð á studioíbúð (sem liggur í út í bakgarð) og báðar rennihurðar (frá stofu og sjónvarpsstofu) endurnýjaðar. Búið er að endurnýja alla glugga á austurhlið hússins. Skólplagnir voru myndaðar nýlega og metnar í lagi út frá þeirri skoðun. Þá er búið að endurnýja eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi, innihurðir o.fl. innanhús.

Nánari lýsing:

Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi, skápum og rennihurð. 
Sjónvarpsherbergi: Með gegnheilu parketi á gólfi, gluggum til austurs og útgengi um rennihurð í bakgarð/stóra verönd.
Eldhús: Hefur verið endurnýjað á smekklegan máta. Gegnheilt parket á gólfi og falleg hvít innrétting með steini á borðum. Undirfelldur vaskur, innb. kæliskápur, innb. uppþvottavél, AEG stál bakaraofn, AEG spansuðu helluborð og vifta. Gott borðpláss er í eldhúsi og gluggar til norðurs.
Stofa: Er rúmgóð með gegnheilu parketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Rennihurð út á verönd fyrir framan hús.
Þvottaherbergi: Er staðsett inn af eldhúsi. Flísar á gólfi og innrétting með miklu skápaplássi, vinnuborði og vask. Tenglar fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggar til austurs og norðurs. Fellistigi upp á geymsluloft fyrir ofan þvottaherbergi.
Svefngangur: Með gegnheilu parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: Með gegnheilu parketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Svefnherbergi I: Með gegnheilu parketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi II: Með gegnheilu parketi á gólfi og glugga til vesturs.
Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað og mjög fallegan máta. Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta með glerþili og innb. blöndunartækjum. Falleg innrétting við vask með steini á borðum, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi til austurs.

Bílskúr: Með bílskúrshurð og inngangshurð. Hellulögð bílastæði fyrir framan með snjóbræðuslu. Inn af bílskúr er studioíbúð/aukaíbúð.

Studioíbúð/aukaíbúð: Er staðsett fyrir innan bílskúr. Flísar á gólfi og gluggar til norðurs og austurs. Gott alrými sem rýmar vel setustofu og stofu/eldhús. Endurnýjuð hurð frá studioíbúð í bakgarð hússins. Lagnir til staðar fyrir eldhúskrók. Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta, upphengt salerni, innrétting við vask og útloftun.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Hlíðarbyggð í Garðabæ þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, fjölbrautarskóla, íþróttasvæði auk verslunar, þjónustu og veitingastaði. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hörðukór 1
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Hörðukór 1
Hörðukór 1
203 Kópavogur
124.1 m2
Fjölbýlishús
413
724 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarnarvellir 9
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Bjarnarvellir 9
Bjarnarvellir 9
230 Reykjanesbær
181.1 m2
Parhús
423
496 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 1
Bílskúr
Skoða eignina Heiðarbraut 1
Heiðarbraut 1
230 Reykjanesbær
181.3 m2
Fjölbýlishús
4
463 þ.kr./m2
84.000.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarbraut 5d
Heiðarbraut 5d
230 Reykjanesbær
175.2 m2
Raðhús
715
502 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin