Fasteignaleitin
Skráð 8. maí 2025
Deila eign
Deila

Álfheimar 68

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
120.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
785.596 kr./m2
Fasteignamat
70.200.000 kr.
Brunabótamat
57.350.000 kr.
Byggt 1961
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2021698
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
í lagi skv seljanda
Þak
í lagi skv seljanda
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hiti í gólfi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Betri Stofan fasteignasala kynnir til sölu: Virkilega glæsilega og ný-innréttaða 120,8 fermetra 4ra herbergja íbúð með þremur svefnherbergjum (tvö innan íbúðar og eitt á jarðhæð) og með tvennum svölum á 1. hæð í vel viðhöldnu og afar vel staðsettu fjölbýlishúsi við Álfheima í Reykjavík. Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarsyni arkitekt en endurhönnun íbúðarinnar leiddi Steinþór Kári arkitekt hjá Kurt og Pi. 

Eigninni fylgir 12,7 fermetra bjart og parketlagt íbúðarherbergi á jarðhæð með aðgengi að nýlega innréttuðu sameiginlegu baðherbergi með glugga. Íbúðarherbergið er í útleigu og eru leigutekjur af því mjög góðar.
Eigninni fylgir einnig 15,4 fermetra sérgeymsla með mikilli lofthæð í kjallara hússins.  

Íbúðin er öll innréttuð á árinu 2024
- Nýjar sérsmíðaðar Hacker innréttingar frá Eirvík í eldhúsi og í þvottahúsi.
- Öll gólf íbúðar hafa verið flotuð, þar ofan á vandað massívt eikarparket, utan votrýma, niðurlímt, lagt í fiskibeinamynstri, undir því er niðurlímdur 3 mm hljóðdúkur. Kverkar         kíttaðar og parektið olíuborið.
- Baðherbergi er allt endurnýjað; nýjar lagnir, nýjar flísar og ný vönduð baðtæki frá Ísleifi og Tengi: Baðkar, rúmgóð sturta með sérsmíðuðu sturtugleri, Duravit Happy D.2.          vaskur með stálgrind. Vegghengt wc og handklæðaofn. Terrasso á gólfi baðherbergis og þvottaherbergis, en veggir eru með subway flísum. 
- Nýjar lagnir í þvottahúsi og í eldhúsi, nýtt niðurfall í þvottahúsi.
- Nýjar raflagnir, tölvulagnir og tafla eru í íbúðinni og allir rofar eru nýjir frá Gira með fjölmörgum dimmerum. Nýtt dyrasímkerfi. 
- Nýjir hurðaflekar úr mahony frá Brúnás innréttinum.
- Rúmgóðir fataskápar frá Brúnás innréttingum eru í svefnherbergi og í útleiguherbergi.
- Öll gler íbúðar eru ný fyrir utan gler í þremur veltigluggum. Gler í útleiguherbergi er einnig nýtt.
- Íbúðin er öll nýmáluð hið innra af málarameistara.

Lýsing á hinni metnu eign:
Forstofa / hol, parketlagt, rúmgott og bjart.
Baðherbergi, með glugga, terrasso á gólfi, flísalagðir veggir að hluta, bæði baðkar og terrasso- og flísalagður sturtuklefi, handklæðaofn, vegghengt wc.  Ný og vönduð innbyggð blöndunartæki.
Eldhús, bæði gengið í það úr holi og úr stofu, bjart og parketlagt með notalegum borðkrók.  Fallegar og vandaðar gráar innréttingar frá Hacker/Eirvík með hæglokun á hurðum og skúffum. Borðplatan er einnig frá Hacker/Eirvík. Tveir Smeg ofnar í innréttingunni, Smeg gashelluborð og vönduð blöndunartæki og vaskur frá Ísleifi.
Þvottaherbergi, innaf eldhúsi, hljóðeinangruð rennihurð frá Hacker/Eirvík, terrasso á gólfi og flísar á vegg. Fallegar og vandaðar hvítar innréttingar og borðplata frá Hacker/Eirvík og stæði fyrir vélar í vinnuhæð. Vaskur og blöndunartæki frá Ísleifi. Gert er ráð fyrir innbyggðum frysti í þvottahúsi. 
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með stórum gluggum eftir allri suðurhliðnnni - Sigvaldastíllinn svokallaði. Útgengi á suðursvalir með lerki á gólfi, góðri lýsingu frá Lumex og nýjum rafmagnstenglum.
Barnaherbergi, gerir ráð fyrir tveimur rúmum parketlagt og rúmgott.
Hjónaherbergi, parketlagt og stórt með fataskápum frá Brúnás innréttingum á heilum vegg og tengi fyrir sjónvarp. Útgengt á norðursvalir með lerki á gólfum.

Á jarðhæð hússins fylgjandi íbúðinni eru:
Sér íbúðarherbergi, parketlagt og með fataskápum frá Brúnás innréttingum. Herberginu fylgir aðgengi að tveimur sameiginlegum og endurnýjuðum baðherbergjum með gluggum, flísalögðum og með sturtuklefum. Ný þvottavél og góð aðstaða til uppvasks.
Sameiginleg hjólageymsla með útgengi inn á baklóð til suðurs.

Í kjallara hússins eru:
Sérgeymsla, 15,4 fermetrar að stærð með góðri lofthæð, mikilli lýsingu og hillum.
Húsfélagið á íbúðarherbergi á jarðhæð, það er í útleigu og er safnað í framkvæmdasjóð. Sameiginlegt lagnarými.

* Tvær kastarabrautir frá Lumex og veggljós, loftljós á baðherbergi sem og loftljós í þvottahúsi eru frá Lumex, en fylgja ekki. 

Húsið að utan var málað árið 2015 og lítur vel út.  Þakjárn er nýlegt sem og þakrennur og niðurföll. 

Lóðin hefur verið endurnýjuð; jarðvegi skipt út og grasflötin tyrfð upp á nýtt. Ný hellulögn fyrir aftan húsið með nýrri drenlögn í kringum allt húsið. Hiti er undir stétt að framan. Garðurinn er sleginn yfir sumarið og stæði mokuð í ófærð þegar þarf.
Góð aðkoma er að húsinu og malbikuð bílaplön með fjölda bílastæða. Einnig hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. 

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, neðsta hús næst Glæsibæ, við opið svæði og stutt er í falleg útivistarsvæði í Laugardalnum, verslanir og þjónustu, heilsugæslu og sérfræðinga, Hreyfingu líkamsrækt, stóra verslun Nettó í Glæsibæ, leikskóla og skóla. 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/05/202148.500.000 kr.45.000.000 kr.120.8 m2372.516 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Arkarvogur 8
Bílastæði
Opið hús:11. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Arkarvogur 8
Arkarvogur 8
104 Reykjavík
123.6 m2
Fjölbýlishús
413
784 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 1 - íbúð 504
Bílastæði
Opið hús:10. maí kl 12:00-13:00
Dugguvogur 1 - íbúð 504
104 Reykjavík
117 m2
Fjölbýlishús
413
845 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Arkarvogur 1 - íbúð 404
Bílastæði
Opið hús:10. maí kl 12:00-13:00
Arkarvogur 1 - íbúð 404
104 Reykjavík
111.4 m2
Fjölbýlishús
413
843 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 1 - íbúð 105
Bílastæði
Opið hús:10. maí kl 12:00-13:00
Dugguvogur 1 - íbúð 105
104 Reykjavík
114.3 m2
Fjölbýlishús
413
813 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin