Fasteignaleitin
Skráð 27. mars 2025
Deila eign
Deila

Leynir 7

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
128.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
699.611 kr./m2
Fasteignamat
59.750.000 kr.
Brunabótamat
71.900.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2023
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2521141
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
Nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðrún Lilja og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og vönduð sumarhús á góðum og vinsælum stað í Grímsnesinu, rétt við Kerið. Húsin eru á eignalóðum og verður svæðið með læstu/aðgangsstýrðu hliði.   Leynir 7 er samtals 128,1 fm. að stærð, samkvæmt teikningu aðalhús 94,1 fm. og 34,0 fm. gestahús.  Stærð lóðar er 6.446 fm. 

Nánari upplýsingar og bókun í skoðun hjá Guðrúnu Lilju í síma 867-1231 eða með tölvupósti á netfangið gudrunlilja@remax.is.  

Einstök staðsetning, aðeins um 45 mín. akstur frá Reykjavík.  Umhverfið er einstaklega fallegt, til móts við Kerið og stutt í þjónustumiðstöðvar Selfossi.  Húsin eru hluti af skipulögðu landsvæði úr landi Miðengis.

MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR MÁ NÁLGAST STRAX SÖLUYFIRLIT OG SKILALÝSINGU 


Leynir 7 er stílhreint og skemmtilega hannað hús sem verður afhent fullbúið.  Tilbúið til afhendingar fljótlega eða eftir samkomulagi.  Húsið er samtals 128,1 fm. að stærð, samkvæmt teikningu aðalhús 94,1 fm. og 34,0 fm. gestahús.  Stærð lóðar er 6.446 fm.   Húsið er á steyptum grunni og með gólfhita.  Hitað með varmadælu.   Húsið er klætt með svartri viðhaldslítilli báruklæðningu, um 200 m2 pallur er við húsið og heitur pottur

Leynir 7 fullbúið og tilbúið til afhendingar eða eftir samkomulagi.
Leynir 1 verður afhent sumar/haust 2025 eða fyrr eftir samkomulagi.  Hægt að hafa áhrif á gólfefni og innréttingar.
Leynir 2 verður afhent sumar/haust 2025 eða fyrr eftir samkomulagi.  Hægt að hafa áhrif á gólfefni og innréttingar.

Nánari lýsing:

Aðalhús: Í aðalhúsinu eru tvö svefnherbergi, stofa og borðstofa í samliggjandi opnu og björtu rými við eldhús.  Eldhúsið er með fallegri Ikea innréttingu og granít borðplötu.  Baðherbergið er með „walk inn“ sturtu, upphengdu klósetti og snyrtilegri baðinnréttingu. Gólf og tveir veggir eru flísalagðir.  Á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottavél.  Harðparket er á öllum rýmum nema baðherbergi.
 
Gestahús: Gestahúsið saman stendur af opnu rými, baðherbergi og þar er einnig tækjarými/geymsla. Harðparkert er á gólfi í aðalrými en flísar á gólfi í baðherbergi og vegg að hluta.
Frá aðalhúsi er skyggni í átt að gestahúsi og með húsinu er um 200 fm pallur. Í húsunum er gólfhiti.
 
Skilalýsing:

Lóð og teikningar

Lóðin skilast með um 200 m2 sólpalli, bílastæði sem eru fyrir 3 bíla samtals um 90 m2. Teikningar liggja fyrir.  Aðalteikningar, burðavirkisteikningar, lagna-og rafmagnsteikningar.

Lagnir
Skólp og frárennsli er tengt við rotþró. Hitalagnir eru steyptar í plötu. Rör í rör kerfi er fyrir neysluvatn og varmadæla fyrir hitakerfi.

Útveggir og milliveggir
Útveggir eru byggðir upp úr styrkleikaflokkuðu timbri, 45 x 140mm og klæddir með 12mm osb plötum að utan til stífingar. Vinddúkur utan um osb og klætt á lektur með svartri báruklæðiningu. Milliveggir úr 34x70 mm og klæddir með OSB og gips.

Þak og loft
Þak er byggt úr 45x240 mm sperrum, timburklæðiningu, þakpappa og 0,6 mm bárujárni. Kalt þak er milli aðalbyggingar og gestahúss (25 m2) sem byggt er úr 45x220 mm sperrum, 26x150mm  timbri, isola D-glass þakpappa og 0,6 mm bárujárni en óeinangrað.

Gluggar og hurðir
Gluggar og opnanleg fög eru ál/tré.

Útveggir og rakasperra
Útveggir eru einangraðir með steinull, 140 mm.  Rakasperra er fullfrágengin. Útveggir skilast klæddir með gips og OSB.

Loftaklæðning
Loftið er klætt með gipsi, spaslað, og málað.

Rafmagn
Rafmagn er ídregið og búið að tengja tengla og ganga frá rafmagnstöflu. Lok á tengla og rofa skilast fullfrágengið. Sjáanlegt  raflegnaefni kemur frá viðurkendum aðilum.
Gert er ráð fyrir innfelldri lýsingu í stofu og eldhúsi en kúplar á öðrum stöðum. 

Vatn og hitalagnir
Búið verður að ganga frá neysluvatni í veggi og tengja við hitakerfi. Klósettkassi er tengdur.
Eldhús eldhúsinnrétting er frá Ikea og eldhústæki frá viðurkenndum aðilum.

Gólfefni
Harðparket á alrýmum/gólfum en baðherbergi flísalögð. 

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Remax fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/06/20231.640.000 kr.82.000.000 kr.128.5 m2638.132 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2023
34.4 m2
Fasteignanúmer
2521141
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.550.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mörk 8
Skoða eignina Mörk 8
Mörk 8
805 Selfoss
140 m2
Sumarhús
5
642 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Snorrastaðir
Skoða eignina Snorrastaðir
Snorrastaðir
806 Selfoss
110 m2
Sumarhús
413
817 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Ketilsstaðir
Skoða eignina Ketilsstaðir
Ketilsstaðir
851 Hella
148.3 m2
Sumarhús
423
633 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Guðjónsgata 4
Skoða eignina Guðjónsgata 4
Guðjónsgata 4
806 Selfoss
125.2 m2
Sumarhús
514
703 þ.kr./m2
88.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin