Fasteignaleitin
Skráð 18. mars 2025
Deila eign
Deila

Hringbraut 120

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
96.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
108.900.000 kr.
Fermetraverð
1.127.329 kr./m2
Fasteignamat
72.650.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2527386
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Nýbygging
Raflagnir
Nýbygging
Frárennslislagnir
Nýbygging
Gluggar / Gler
Nýbygging
Þak
Nýbygging
Svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
8 - Í notkun
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir í einkasölu: 

Nýjan og glæsilegan íbúðarkjarna á gamla Steindórsreitnum í 101 Reykjavík (Grandatorg.is) sem skartar þremur flottum byggingum við Sólvallagötu með alls 84 íbúðum. 

Allar íbúðir í húsinu eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning.
Íbúðir á Hringbraut 120 eru afhentar með gólfefnum, harðparket á gólfi að undanskildum votrýmum, þar verða 60 x 60 flísar. Eldhús skilast með innbyggðum ísskáp og frystir ásamt innbyggðri uppþvottavél. Í öllum herbergjum og stofum er búið að setja upp hvítar rúllugardínur.

Nánar um eign 01-0405 á Hringbraut 120: Eignin er þriggja herbergja herbergja íbúð á 4. hæð merkt  01-0405, birt stærð 89,1 fm. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara merkt 0039 birt stærð 7,5 fm. Eigninni tilheyra svalir merktar 0419. Birt heildarstærð séreignar er 96,6 fm. 

Íbúðirnar umlykja flestar fallegan inngarð þar sem líf og samfélag rennur saman og skapar nánd milli íbúa. Í hverju skrefi var hugað að þægindum, notagildi og stíl sem fellur vel að umhverfi við Sjávarsíðuna.

Bókaðu skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Sjá má skilalýsingu, verðlista á íbúðum og verðlista á bílastæðum ( til kaups eða leigu ) og nánari upplýsingar um húsið inn á heimasíðu verkefnisins: Grandatorg.is
 
Margar íbúðir með fallegt og gott útsýni til sjávar- og fjalla.
Fjölbreytt val um íbúðir. Allt frá studió íbúðum yfir í fjögurra herbergja íbúðir.
Stærðir eru frá 49,4 fm. – 157,1 fm.
Verð eru frá kr. 59.900.000 kr.
 
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar hjá Gerher í Litháen sem er þjónustað af HBH Byggir ehf.
Um er að ræða vandaða framleiðslu úr melamin efni frá Egger sem er sérstaklega endingagott og slitsterkt. Votrými eru flísalögð. Hurðir eru frá Harðviðarval.

Eftirfarandi íbúðir í kjarnanum skilast með Quarts borðplötum. Íbúðir nr. 201, 301, 310, 315, 316, 317, 318, 319, 401, 408, 409, 410, 411, 412, 413, 506 og 507
Eftirfarandi íbúðir í kjarnanum eru með teppi á steyptum stiga milli hæða. Íbúðir 315, 316, 317, 318, 319

Nánar um húsið, möguleika á bílastæðum og hverjir standa að verkinu.

Bílakjallari / Eigendur á Grandatorgi hafa möguleika á að kaupa bílastæði eða leigja gegn sanngjörnu gjaldi.  

Það eru samtals 86. bílastæði í bílakjallara sem verða seld eða leigð eftir vali kaupanda, eitt eða fleiri eftir þörfum viðkomandi, 8. af þeim stæðum eru með aukageymslu fyrir framan. Í þeim tilvikum verða bílastæðið og geymslan seld saman.

Verð á bílastæðum til kaups er sem hér segir:
Hefðbundið bílastæði, verð kr. 6,0 m.
Stæði með aukinni breidd, verð kr. 7,0 m.

Markmiðið með vali um kaup eða leigu á bílastæði er til að stuðla að réttlátri úthlutun bílastæða.
Nánari upplýsingar um áskriftakerfið má finna í verðskrá og reglum bílastæðahússins inn á grandatorg.is

Atvinnurýmin í bogadregna húsinu á Sólvallagötu 79 sem liggur við Hringbraut verða tilbúin til afhendingar frá og með 15. september 2024.

Hitakerfi:

Íbúðir í bogadregna húsinu sem liggur við Hringbraut eru upphitaðar með gólfhitakerfi. Aðrar íbúðir við Sólvallagötu 79 eru upphitaðar með hefðbundnum miðstöðvarofnum..
 
Gluggar:
Álklæddir timburgluggar frá Kömbum. Tvöfalt einangrunargler í gluggum.
 
Lóð afhendist fullfrágengin. Hitalögn verður í helstu gönguleiðum, þ.e. stígur milli Hringbrautar og Sólvallagötu við lóðir Framnesvegar, og meðfram Hringbrautarhúsinu í inngarð. Grassvæði verða frágengin og gróðurbeð grófjöfnuð, gróður fylgir ekki með skv. lóðarteikningu. Á leiksvæði barna verður hægt að setja upp leiktæki. Helstu gönguleiðir og aðgengi að anddyrum snjóbræddar.
 
Að verkinu standa eftirtaldir aðilar:
Byggingaraðili er Reir Verk ehf. sem er öflugt byggingarfélag sem vinnur að fjölbreyttum fasteignaverkefnum ásamt því að vinna að ýmsum byggingaverkefnum á eigin vegum. Fyrirtækið leggur áherslu á að veita heildarlausnir í byggingaverkefnum, góða þjónustu og vandaða vöru.
 
Arktitekt og aðalhönnuður er  +Arkitektar
Burðarþol, Verkfræðistofa Þráinn & Benedikt ehf.
Lagnir, Verkfræðistofa Þráinn & Benedikt ehf.
Raflagnir, Voltorka
Seljandi, Steindór ehf.
 
Til áréttingar:
Upplýst er um að lóðin verður byggingasvæði í einhvern tíma eftir að eignir eru afhendar og að lokaúttekt getur tafist þar til lóðin og öll mannvirki innan lóðar eru fullkláruð. Seljandi mun ábyrgjast lokaúttekt á eigninni en afsal kann að fara fram áður en lokaúttekt á eigninni/heildareigninni fæst.
 
Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.
 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef um lögaðila er að ræða) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 
 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hverfisgata 96
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Hverfisgata 96
Hverfisgata 96
101 Reykjavík
115.4 m2
Fjölbýlishús
312
1036 þ.kr./m2
119.500.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 13
Skoða eignina Tryggvagata 13
Tryggvagata 13
101 Reykjavík
111.3 m2
Fjölbýlishús
322
978 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 23
Skoða eignina Tryggvagata 23
Tryggvagata 23
101 Reykjavík
85 m2
Fjölbýlishús
322
1293 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Þorfinnsgata 8
Skoða eignina Þorfinnsgata 8
Þorfinnsgata 8
101 Reykjavík
115.1 m2
Fjölbýlishús
313
903 þ.kr./m2
103.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin