Fasteignaleitin
Skráð 5. júlí 2025

Brekkubyggð 69

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
78.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.500.000 kr.
Fermetraverð
992.318 kr./m2
Fasteignamat
79.500.000 kr.
Brunabótamat
41.150.000 kr.
Mynd af Maria Guðrún Sigurðardóttir
Maria Guðrún Sigurðardóttir
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2069568
Landnúmer
118199
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sér afnotareitur
Lóð
7,48
Upphitun
Sér
Inngangur
Sérinngangur
VALBORG FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjart og fallegt 3ja herbergja 78,1 m² raðhús á einni hæð við Brekkubyggð 69 í Garðabæ. Húsið er á eftirsóttum stað með sérinngangi, pallur bæði að framan og á baklóð. 

*** Fasteignamat 2026 er kr. 79.500.000. ***

Eignin er skráð samkv. fasteignaskráningu 78,1 m² þar af er 2,3 m² sér geymsla í sameign.

Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymslu.

Nánari lýsing: 
Forstofa: Fataskápur og flísar á gólfi. 
Eldhús: Falleg hvít innrétting með eyju og góðu skápaplássi. Parket á gólfi.   
Stofa/ borðstofa: Björt stofa með stórum gluggum og með útgengi út á pall með skjólgirðingu. Parket á gólfum. 
Svefnherbergi I: Góður fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Flísar á gólfi. Rýmið var áður þvottahús.
Baðherbergi: Flísalagt með ljósri baðinnréttingu, upphengdu klósetti og sturtu. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 2,3 m² geymsla með hillum.

Falleg og snyrtileg eign með sérinngangi frá palli á frábærum stað í Garðabænum þar sem stutt er í alla þjónustu.

Endurnýjun á húsi á árunum 2020-2023.
2020 - Neysluvatnslagnir voru hreinsaðar og fóðraðar úr galvaniseruðum járnlögnum frá inntaki kalda vatnsins að blöndunartækjum.
2020 - Rafmagnstafla var uppfærð.
2020 - Ný ljós í öllum herbergjum nema eldhúsi.
2021 - Baðherbergi uppgert. Ný innrétting, flísar málaðar, vifta sett upp og stæði gert fyrir þvottavél og þurrkara.
2021 - Þvottahúsi breytt í lítið herbergi.
2021 - Ný borðplata á eldhúseyju.
2021 - Gras fjarlægt í garði og girt í kringum húsið.
2022 - Ný uppþvottavél í eldhúsi.
2022 - Útidyrahurð máluð og allir gluggar að utan.
2023 - Ný blöndunartæki í eldhúsi.
2023 - Nýr ofn í stofunni.

Þak eignar var yfirfarið árið 2017, þar sem skipt var m.a. um þakjárn, þakpappa, túður og rennur.
Húsið var málað að utan sem og gluggar árið 2017.

Nánari upplýsingar veita:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.

Maria Guðrún Sigurðardóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 820 1780, tölvupóstur maria@valborgfs.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/10/202041.500.000 kr.45.200.000 kr.78.1 m2578.745 kr.
09/08/201626.650.000 kr.34.200.000 kr.78.1 m2437.900 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 31 Íb 201 Hlutdlán
Bílastæði
Opið hús:10. mars kl 17:30-18:00
Hringhamar 31 Íb 201 Hlutdlán
221 Hafnarfjörður
79.8 m2
Fjölbýlishús
311
Fasteignamat 66.850.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hringhamar 19 (702)
Bílastæði
Opið hús:10. mars kl 18:00-18:30
Hringhamar 19 (702)
221 Hafnarfjörður
100.2 m2
Fjölbýlishús
312
927 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Súðarvogur 9a
Bílastæði
Skoða eignina Súðarvogur 9a
Súðarvogur 9a
104 Reykjavík
81 m2
Fjölbýlishús
312
962 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Vegghamrar 14
Skoða eignina Vegghamrar 14
Vegghamrar 14
112 Reykjavík
100.8 m2
Fjölbýlishús
413
743 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin