Betri Stofan fasteignasala kynnir til sölu: Virkilega fallega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða 2ja herbergja 50,9 fermetra íbúð á 2. hæð með svölum til vesturs auk 2,9 fermetra sérgeymslu í kjallara og hlutdeildar í sameign í vel staðsettu fjölbýlishúsi við Bólstaðarhlíð í Reykjavík.
Stutt í alla þjónustu m.a. skóla og leikskóla ásamt því að Kringlan er í göngufæri.Lýsing eignar:Forstofa/hol: harðparket á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi: flísar á gólfi og hluta veggja, baðkar með sturtuaðstöðu og nýlegur vaskskápur. Nýlegt wc og blöndunartæki.
Svefnherbergi: rúmgott, parketlagt og með fataskápum með rennihurðum.
Eldhús: parketlagt og með nýlegri hvítri innréttingum með flísum á milli efri og neðri skápa. Borðaðstaða er í eldhúsi.
Stofa: rúmgóð, björt og parketlögð með útgengi á rúmgóðar svalir til vesturs.
Í kjallara hússins eru:Sér
geymsla og sameiginlegt stórt og snyrtilegt
þvottaherbergi með sér tenglum fyrir hverja íbúð og vaski. Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla er með inngangi af framlóð.
Eftirfarandi viðhald hefur verið framkvæmt á undanförnum árum.
* Þak, þakkantur og þakennur voru yfirfarnar og lagfærðar.
* Árið 2016 var haldið áfram með viðgerðir á húsinu - gluggar lagaðir eða skipt um þá. Múrviðgerðir gerðar á austurhlið hússins.
* Árið 2017 var haldið áfram með múrviðgerðir á austurhlið hússins.
* Árið 2018 var skipt um 30 glerum/gluggum á austurhlið hússins og sú hlið máluð.
* Árið 2019 voru framkvæmdar viðgerðir á norður- og suðurgafl hússins og það svo málað. Ný handrið sett á svalahandriðin og þau hækkuð. Inngangur í húsið brotinn niður og steyptur upp á nýtt og málaður.
* Árið 2020 voru múrviðgerðir og vesturhlið hússins máluð, mála tré og blikkverk og skipta um gler og glugga eftir þörfum.
* Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð.
Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson löggiltur fasteignasali í síma 893-9929 eða pall@betristofan.is