Fasteignaleitin
Skráð 29. maí 2026

Nesvegur 61

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
83.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
1.020.433 kr./m2
Fasteignamat
76.000.000 kr.
Brunabótamat
44.250.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2219651
Landnúmer
106119
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Málað 2024
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt á skrá! Nesvegur 61 í Reykjavík - falleg 3ja herb. íbúð með útsýni út á sundin, svölum til suðurs með svalalokun og bílastæði með rafhleðslustöð.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir til sölu afar fallega og sjarmerandi 83,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2.hæð í steinsteyptu fjórbýli, byggðu árið 1995, við Nesveg 61 í Reykjavík. Íbúðin er með rúmgóðu alrými og útgengi á svalir til suðurs með svalalokun og fallegu útsýni út á sundin. Stæði fyrir framan hús með rafhleðslustöð og sérgeymsla á jarðhæð sem er 6,0 fermetrar að stærð.

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, gott alrými sem rúmar vel setustofu og borðstofu og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. 

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Vesturbæ Reykjavíkur. Leikskóli, grunnskóli, sundlaug og íþróttasvæði KR í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta, ásamt kaffihúsi, í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Ægisíðuna. 

Nánari lýsing:

Forstofa: Með parketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð og með parketi á gólfi. Stofa rúmar borðstofu og setustofu. Gluggar til suðurs og austurs. Útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs, með svalalokun og fallegu útsýni út á sundin.
Eldhús: Með parketi á gólfi og góðri eldhúsinnréttingu. Electrolux eldavél og Electrolux uppþvottavél. Gluggi til austurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum, sturta, innrétting við vask og gluggi til austurs. Tenglar fyrir þvottavél/þurrkara.
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðausturs.

Geymsla: Er 6,0 fermetrar að stærð og er staðsett á jarðhæð hússins.

Sameign er snyrtileg með steinteppi á stigagangi og flísum í ytri forstofu. Stórir gluggar til norðausturs sem hleypa inn góðri birtu inn í sameign hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Greniteigur 15
Bílskúr
Skoða eignina Greniteigur 15
Greniteigur 15
230 Reykjanesbær
172.6 m2
Raðhús
514
498 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 13
Bílastæði
Skoða eignina Dugguvogur 13
Dugguvogur 13
104 Reykjavík
235.8 m2
Fjölbýlishús
423
385 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 12
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 12
Valshlíð 12
102 Reykjavík
77 m2
Fjölbýlishús
211
1038 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Klettaberg 36
Bílskúr
Opið hús:08. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Klettaberg 36
Klettaberg 36
221 Hafnarfjörður
155.8 m2
Fjölbýlishús
413
737 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin