Fasteignaleitin
Opið hús:26. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 21. ágúst 2026

Grænakinn 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
90 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.200.000 kr.
Fermetraverð
757.778 kr./m2
Brunabótamat
39.500.000 kr.
Byggt 1952
Svalir
Fasteignanúmer
20750151
Húsgerð
Fjölbýlishús

Sjarmerandi og björt 3ja herb. 90 fm neðri sérhæð með tveim sér inngöngum í fallegu tvíbíli í rólegu hverfi í fárra mínútna göngu frá rómaða miðbæ Hafnarfjarðar og sjávarsíðunni. Fasteignasalan Heimaland ehf. kynnir Grænakinn 19, Hafnarfirði. Íbúðin er 90 fm og skiptist í eldhús, stofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi, lítið fataherbergi, þvotta-/lagna- og geymsluherbergi. Nánast öll íbúðin máluð 2025/2026. Opið skemmtilegt leiksvæði með ymsum leiktækjum á þarnæstu lóð. Sérlega skemmtileg eign þar sem gengið er beint út í gróðursælan garðinn. Frábær aðstaða til að vera með hund.

Íbúðin:
Forstofa er flísalögð með glugga út í garðinn og fatahengi.
Eldhús er rúmgott með hvítmálaðri innréttingu, gegnheilum við á borðum og vastki við glugga.
Stofa/borðstofa og eldhús eru samtengd og vel rúmgott alrými með gluggum út í garðinn.
Herbergi eru tvö svefnherbergi inn af öðru þeirra er fataherbergi/geymsla með glugga.
 Baðherbergið er með opnanlegum glugga og sturtu í baðkar, hvítum tækjum og afstúkuðu geymslu skoti. Vaskur í nýlegri innréttingu.  
Þvottaherbergið og geymslan er með hurð út í garðinn. þar eru intök og mælar fyrir vatn og rafmagn.  
Gólfefni og innihurðar. Ljós gráar flísar á forstofu, baðhergergi og þvottaherbergi. Ljóst parket á öðrum  gólfum. Hvítmálaðar hurðar. 
Húsið  er steypt og með grá máluðum sléttum flötum og hvítum gluggum.  Tröppurnar sem liggja að aðalinngangi voru múraðar upp á nýtt í júlí 2022. Skipt um glugga í borðstofu 2025.
Lóðin er sameiginleg nema sér afnotareitur fyrir efri hæðina. Mikill gróður og grasflatir. Lítið hús í garðinum þ.s. gott er að geyma garðáhöld.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8216610, tölvupóstur gudny@heimaland.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 15
Opið hús:25. ágúst kl 17:15-17:45
Skoða eignina Hjallabraut 15
Hjallabraut 15
220 Hafnarfjörður
101.3 m2
Fjölbýlishús
312
631 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 Íbúð 105
Baughamar 5 Íbúð 105
221 Hafnarfjörður
92.1 m2
Fjölbýlishús
312
749 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
Efsta hæð
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
Spánn - Costa Blanca
88 m2
Fjölbýlishús
322
520 þ.kr./m2
45.800.000 kr.
Skoða eignina Skólatröð 2
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:45
Skoða eignina Skólatröð 2
Skólatröð 2
200 Kópavogur
92.1 m2
Fjölbýlishús
312
1030 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin