Björt og falleg 3-4ra herbergja íbúð á 1. hæð ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu í snyrtilegu lyftuhúsi við Lyngás 1A í Garðabæ. Sérinngangur inn í íbúðina úr inngarði. Vandaðar innréttingar frá HTH, myndavéladyrasími. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, eitt inna af stofu sem var bætt við og er auðvelt að breyta til baka. Eldhús og stofa í opnu rými með útgengi á svalir. Sameiginlegur garður með leiktækjum. Eignin er skráð 90,3 fm, þar af 7,1 fm geymsla í sameign. Falleg eign í fjölskylduvænu hverfi þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri. Leikskólarnir Ásar og Sjáland eru steinsnar frá sem og Sjálandsskóli, Flataskóli og Garðaskóli. Íþróttamiðstöðin og sundlaugin í Ásgarði eru í innan við 5 mínútna göngufæri.
Allar nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Íbúð 109:Forstofa/hol: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Hvít innrétting, parket á gólfi, grá borðplata, eldhústæki frá AEG, tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi, útgengi á 5,2 fm svalir.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgóður hvítur fataskápur.
Barnaherbergi: Parket á gólfi, hvítur fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting með handlaug og góðu skápaplássi, sturta með gleri, handklæðaofn, upphengt salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.
Sérgeymsla (7,1fm) í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.