Fasteignaleitin
Skráð 31. mars 2026

Borgarflöt 19

Atvinnuhúsn.Norðurland/Sauðárkrókur-550
70.1 m2
Verð
35.000.000 kr.
Fermetraverð
499.287 kr./m2
Fasteignamat
15.100.000 kr.
Brunabótamat
29.350.000 kr.
Mynd af Björgvin Þór Rúnarsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Fasteignasali
Fasteignanúmer
2368134
Landnúmer
216112
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
09
Lóðarréttindi
Leigulóð
Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Borgarflöt 19, 550 Sauðárkrókur

Til sölu er vel staðsett og snyrtilegt atvinnuhúsnæði við Borgarflöt 19 á Sauðárkróki.
Um er að ræða iðnaðarrými sem er skráð 70,10 fm að stærð samkvæmt fasteignaskrá, auk óskráðs millilofts sem er áætlað um 20 fm að stærð. Milliloftið er m.a. nýtt sem kaffiaðstaða og eykur nýtingarmöguleika húsnæðisins.
Rýmið er vel skipulagt og hentar vel fyrir verkstæðis- eða iðnaðarstarfsemi. Í húsnæðinu er niðursteypt bílalyfta og vönduð verkfæra- og skápaaðstaða meðfram vegg sem fylgir eigninni.

Byggingarlýsing:
Húsið er límtréshús, einangrað og eldvarið með steinullareiningum, reist á steyptum grunni.
Gólf er steinsteypt með slitsterku epoxý yfirlagi. Húsnæðið er með sjálfstæðan inntaksstofn, þ.e. vatn, rafmagn og gagnaveitu.

Samningsatriði milli seljanda og kaupanda varðandi húsgögn og tæki sem eru í húsnæðinu við afhendingu fylgi með við sölu, samkvæmt nánara samkomulagi aðila.
Um er að ræða hagkvæmt og vel búið atvinnuhúsnæði með góða nýtingu og fjölbreytta möguleika til rekstrar.

Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/04/20228.120.000 kr.18.000.000 kr.70.1 m2256.776 kr.
20/07/20185.890.000 kr.13.000.000 kr.70.1 m2185.449 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (3)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ægisbyggð 20
Skoða eignina Ægisbyggð 20
Ægisbyggð 20
625 Ólafsfjörður
125 m2
Einbýlishús
413
295 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallahraun 9B
Skoða eignina Hjallahraun 9B
Hjallahraun 9B
220 Hafnarfjörður
413 m2
Atvinnuhúsn.
2
Fasteignamat 75.200.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Kirkjuvegur 3
Skoða eignina Kirkjuvegur 3
Kirkjuvegur 3
625 Ólafsfjörður
170.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
615
247 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvegur 34
Skoða eignina Kirkjuvegur 34
Kirkjuvegur 34
230 Reykjanesbær
49.5 m2
Fjölbýlishús
211
747 þ.kr./m2
37.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin