Hraunhamar fasteignasala kynnir: Rúmgóða og fallega tveggja herbergja íbúð með sérinngangi í glæsilegu virðulegu þríbýli á þessum eftirsótta stað við Flókagötu 43 Rvk á móts við Kjarvalsstaði.
Íbúðin hefur verið endurnýjuð að innan að miklu leyti, m.a. nýtt eldhús, nýlegt baðherbergi, gólfefni og gólfhiti ofl. Hiti í gólfum.
Flókagatan er með fallegri götum borgarinnar, enda óvenju breið og rúmgóð með fallegum byggingum öðrumegin og Kjarvalsstöðum hinumegin. Frábær staðsetning í miðborginni !
Eignin er skráð samtals 78 fm þar af 7,4 fm geymsla.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing eignarinnar:Flísalögð
forstofa.
Hol og
sérgeymsla undir stiga.
Parketlagður
gangur.Rúmgott
svefnherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Rúmgóð
stofa og borðstofa með parket á gólfi.
Eldhús með nýlegri hvítri inréttingu, nýleg tæki, innbyggður ísskápur og þvottavél. Parket á gólfi.
Flísalagt
baðherbergi með hvítri innréttingu, upphengt salerni og ,,walk in sturtu''.
Inn af
forstofu er gengið inn á sameignargang þar er ségeymsla.
Sameiginlegt þvottahús.
Samkvæmt upplýsingum seljenda er búið er að skipta um frárennslislagnir og yfirfara og endurnýja pípu- og raflögn og tengla. Einnig drenlögn að framanverðu. Gólfhiti. Nýlegt parket, innrétting á baði, flísar og hurðir.
Nýlegar hvítar innihurðir. Nýleg innrétting og tæki í eldhúsi.
Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð að innan. Frábær staðsetning stutt frá miðborginni. Fallegur sameiginlegur garður. Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða glodis@hraunhamar.is
og Valgerður Ása Gissurardóttir löggiltur fasteignasali s. 791-7500 eða vala@hraunhamar.isSkoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er ein af elstu fasteignasölum landsins, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is