Fasteignaleitin
Skráð 7. okt. 2026

Vaðnesvegur 2b

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
60.1 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.000.000 kr.
Fermetraverð
981.697 kr./m2
Fasteignamat
37.000.000 kr.
Brunabótamat
27.030.000 kr.
Mynd af Kristófer Ari Te Maiharoa
Kristófer Ari Te Maiharoa
Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali
Byggt 1984
Geymsla 15m2
Garður
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2208351
Landnúmer
169743
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
pallur
Lóð
100
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
LÓB fasteignir kynnir eignina Vaðnesvegur 2b, Grímsnes- og Grafningshrepp, 805 Selfoss. Vaðnesvegur 2b er skráð með birta stærð 60.1 fm. sem skiptist í 45,1m2 sumarhús og 15m2 geymslu, eða samtals 60.1 m2. sem stendur á u.þ.b. 2.5 ha. eignarland. Vaðnesið er afar vinsælt sumarhúsahverfi þar sem stutt er í alla þjónustu á Selfossi.

Vaðnesvegur 2b var byggt árið 1984, með málaðri timburklæðningu að utan og bárujárn á þaki. Í kringum húsið er timburpallur í ágætis standi. Á pallinum er sólskáli, heitur pottur og geymsluskúr. Stór eignarlóð fylgir eigninni eða um 2.5 hektari að stærð. Ganga þarf göngustíg um 20m frá bílastæði að húsinu. 

Gengið er inn í forstofu þar sem lítið baðherbergi er með salerni, sturtu og lítilli innréttingu. Úr forstofu er gengið inn í stofu og lítið eldhús í sameiginlegu rými. Útfrá sameiginlegu rými eru 3 herbergi. Eitt herbergið er notað sem borðstofa, annað herbergi er með rúmi og koju yfir rúminu. Aðgengi að hjónaherbergi er úr stofu og er búið að útbúa kojur í millirými frá stofu og svefnherbergi. Útgengt er úr svefnherbergi og stofu út á pall. Parket á gólfi og timburlitaður panill á veggjum og lofti innanhúss.

Nýtingarhlutfall lóðarinnar er 0.03 og því tækifæri til meiri uppbyggingar en skv. deiliskipulagi er heimilt að byggja 2 hús ásamt geymslu á lóðinni. 

Nánari upplýsingar veitir Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur kristo@olafur.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1984
15 m2
Fasteignanúmer
2208351
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
3.430.000 kr.

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sandskeið G gata 5
Heitur pottur
Sandskeið G gata 5
806 Selfoss
53,6 m2
Sumarhús
312
800 þ.kr./m2
42.900.000 kr.
Skoða eignina Valhnjúkasund 12
Á einni hæð
Valhnjúkasund 12
805 Selfoss
45,4 m2
Sumarhús
12
705 þ.kr./m2
32.000.000 kr.
Skoða eignina Rjúpnastekkur 10
Heitur pottur
Rjúpnastekkur 10
806 Selfoss
62 m2
Sumarhús
312
595 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Skoða eignina Dalahraun 19
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Dalahraun 19
Dalahraun 19
810 Hveragerði
70,7 m2
Fjölbýlishús
312
743 þ.kr./m2
52.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin