Fasteignaleitin
Skráð 19. ágúst 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
215 m2
8 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
97.800.000 kr.
Fermetraverð
454.884 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
701927888
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Svalir
Stórar verandir með glæsilegu útsýni
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *EINSTÖK VILLA Á FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ* *STAÐSETT Á FYRSTU LÍNU Á LAS RAMBLAS GOLFVELLINUM*
Stórglæsilegt, rúmgott einbýlishús með bílskúr. Einstakt útsýni, stórri lóð með einkasundlaug í fyrstu línu við hinn vinsæla Las Ramblas golfvöll, um 50 mín akstur suður af Alicante. Húsið er á þremur hæðum, og auk þess þakherbergi, þar sem nú er skrifstofa. Einn eigandi frá upphafi.
SJÁ MYNDBAND HÉR: https://youtu.be/ilB9L57in-8?si=loUULH6pEDUlXaFw

Allar upplýsingar gefa
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, sími 0034 615 112 869, berta@spanareignir.is
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali sími 893 2495. adalheidur@spanareignir.is
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. sími 777 4277. karl@spanareignir.is


Gengið er inn á efstu hæðina og er þar fyrst komið inn í hol og þaðan gengið inn í stórar stofur og fallega borðstofu. Frá stofum er gott aðgengi út á stóra verönd þaðan sem er einstakt útsýni yfir garðinn og golfvöllinn.  Vel útbúið eldhús með vandaðri innréttingu, og frábærri eldunaraðstöðu, sannkallað eldhús fyrir matgæðinga, og er útgengi út á veröndina einnig frá eldhúsi. Þvottahús og gestasnyrting á hæðinni. Á veröndinni er frábær grillaðstaða. Frá eldhúsi er gengið upp í þakrými sem nýtt er sem auka herbergi og skrifstofa.

Gengið er niður á neðri hæð og þar eru þrjú góð svefnherbergi, tvö baðherbergi og fataherbergi. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi, fataherbergi og útgengi út á rúmgóða verönd með glæsilegu útsýni. Gengið niður á neðstu hæð sem er nú nýtt sem stórt opið rými sem auðveldlega er hægt að nýta sem tvö svefnherbergi. Á neðstu hæð er einnig eldhúsinnrétting, baðherbergi og útgengi út í sundlaugargarðin. Þarna væri hægt að gera litla íbúð. Við sundlaugina er góð sólbaðs- og grillaðstaða. Rúmgóð geymsla við hlið húss.
Húsið er mjög vel útbúið; arinn, loftkæling, hiti og öryggiskerfi. Öryggisgrindur fyrir gluggum. Sérstæður bílskúr. Einkasundlaug. Selst með húsgögnum.

FALLEG EIGN Í GÓÐU ÁSTANDI ÞAR SEM VEL HEFUR VERIÐ HUGSAÐ UM ALLA HLUTI. 
Húsið er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romera, Roda Golf, La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl.
Hér er um að ræða algjöra lúxuseign fyrir fjölskylduna og fólk sem kann að njóta lífsins.

Verð: 675.000 Evrur. (ISK 97.800.000,- )

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa  að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.


Eiginleikar: útsýni, bílskúr, air con, BBQ, einkasundlaug, geymsla, golf, endursölueign, einbýli, villa, 
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
701927888

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
168 m2
Einbýlishús
423
578 þ.kr./m2
97.100.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Lomas de Cabo Roig
SPÁNAREIGNIR - Lomas de Cabo Roig
Spánn - Costa Blanca
204 m2
Einbýlishús
423
462 þ.kr./m2
94.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
Spánn - Costa Blanca
169 m2
Einbýlishús
534
557 þ.kr./m2
94.100.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
239 m2
Einbýlishús
634
412 þ.kr./m2
98.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin