LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali, kynna glæsilegt og vel skipulagt einbýli á tveimur hæðum með tvöföldum bílskúr við Baughús 14 í Grafarvogi. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrting, sér þvottahús, sjónvarpshol, stórar stofur, mikið útsýni. Mikil lofthæð á efri hæð. Auðvelt er að stúka stjónvarshol á neðri hæð af og útbúa þannig fimmta svefnherbergið. Eignin er skráð 228,2 fm hjá Þjóðsrká. Þar af er íbúð skráð 178,2 og bílskúr 50 fm.
Fallegur, gróinn garður með timburverönd í suður. Falleg eign í fjölskylduvænu og grónu hverfi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Egilshöll og verslunarkjarninn Spöngin eru næsta nágrenni. Efri hæð:
Mikil lofthæð er á efri hæð, stórir gluggar og fallegt útsýni til norðurs þar sem Esjan blasir við.
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Forstofuherbergi: Rúmgott og bjart. Parket og fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, hvít og viðarlituð U-laga innrétting með góðu skápaplássi, fallegt útsýni.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi: Mjög rúmgott og bjart rými, parket á gólfi. Mikil lofthæð og stórir gluggar. Útgengi á fallega timburverönd með heitum potti. Einnig er útgengi á stórar norður- og vesturvalir.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi, handlaug, salerni.
Stór og fallegur stigi liggur niður á neðri hæð. Stiginn er steyptur og parketlagður. Stór og fallegur gluggi nær frá efri hæð niður á neðri hæð sem setur einkar glæsilegan svip á húsið.
Neðri hæð: Hol og sjónvarpsrými: Parket á gólfi. Auðvelt er að stúka sjónvarpsrými af og útbúa fimmta svefnherbergið. Útgengi er frá neðri hæð í gróinn garð.
Svefnherbergi 2 (hjón): Mjög rúmgott, parket á gólfi, opið fataherbergi.
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi 4: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Innrétting með handlaug, baðkar, sturta, handklæðaofn, salerni.
Þvottahús: Steypt gólf, léttar hillur, skolvaskur, opnanlegur gluggi.
Bílskúr er tvöfaldur (50 fm). Steypt gólf, heitt og kalt vatn, skolvaskur, geymsluloft, opnanlegir gluggar. Stórt bílaplan er fyrir framan bílskúr.
Snjóbræðsla er í bílaplani og í tröppum frá bílastæði að húsi. Dæla er nýleg.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.