Fasteignaleitin
Skráð 9. apríl 2026

Spanareignir - La Florida

RaðhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
34.000.000 kr.
BH
Berta Hawkins
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
103090426
Landnúmer
0
Húsgerð
Raðhús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUHÚS MEÐ SUÐURGARÐI* *ENDALÓÐ, EINKASUNDLAUG OG BÍLSKÚR* *GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI* *ÞAKSVALIR* *3 SVEFNH. OG 2 BAÐH* *EINNIG AÐGANGUR AÐ SAMEIGINLEGRI SUNDLAUG*

Þessi skemmtilega eign var að koma í sölu, í La Florida hverfinu í Orihuela Costa. Göngufæri við verslanir, veitingastaði og laugardagsmarkaðinn í Playa Flamenca.
Á fyrstu hæð eru 2 svefnherbergi og 1 baðherbergi. Stofa og eldhús eru í opnu rými, og tengjast garðinum vel. Á efri hæð er stærsta svefnherbergið, baðherbergi, og útgengi út á sólríkar þaksvalir. 
Húsið stendur á endalóð og er garðurin stór og sólríkur, með einkasundlaug. Eigninni fylgir bílskúr. Frábær eign til að eyða frídögum eða til að búa í allt árið. Eigninni fylgir aðgangur að sameiginlegum sundlaugargarði
Einungis 5 mín labb í matvöruverslun og veitingastaði, og 10 mín labb á hinn vinsæla laugardagsmarkað í Playa Flamenca.

Nánari upplýsingar veitir Berta Hawkins, lögg. fasteignasali, í síma 0034 615 112 869 eða berta@spanareignir.is

Einstakt tækifæri til að eignast gott hús á frábæru verði. Um 45 mín akstur suður frá Alicante.Stutt er í alla helstu þjónustu, verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard, úrval veitingastaða, fallegar strendur og ótal góða golfvelli.

Alicante flugvöllur er í ca. 45 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Verð: 234.900 evrur eða 34.000.000 ISK (mv. gengi 145)

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: fjölskylduhús, bílskúr, suður garður, air con, geymsla, þaksvalir,
Svæði: Costa Blanca, La Florida,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
103090426

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hulduhóll 23
3D Sýn
Skoða eignina Hulduhóll 23
Hulduhóll 23
820 Eyrarbakki
80 m2
Raðhús
212
638 þ.kr./m2
51.000.000 kr.
Skoða eignina Njarðvíkurbraut 50 D
Opið hús:03. júní kl 17:30-18:00
Njarðvíkurbraut 50 D
260 Reykjanesbær
67.7 m2
Fjölbýlishús
313
589 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Fagurhóll 14
Skoða eignina Fagurhóll 14
Fagurhóll 14
245 Sandgerði
78.6 m2
Raðhús
312
698 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Faxabraut 41
Bílskúr
Skoða eignina Faxabraut 41
Faxabraut 41
230 Reykjanesbær
180.5 m2
Raðhús
413
440 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin