Fasteignaleitin
Skráð 8. des. 2025
Deila eign
Deila

Jöfursbás 5

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
251.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
436.804 kr./m2
Fasteignamat
95.250.000 kr.
Brunabótamat
155.390.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2530341
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
25fm. svalir
Lóð
1,73
Upphitun
Danfoss sameiginlegur
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
6 - Fullgerð án lóðarfrágangs
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
Ákveðnir starfsmenn fasteignasölunnar eru óbeinir hluthafar í félaginu sem selur.
Einstök eign - Sýni samdægurs. Bókið skoðun í síma 856 3566 eða á ingunn@domusnova.is

Domusnova og Vilborg kynna afar fallega og vel skipulagða 3ja herbergja endaíbúð á 4. hæð (íbúð 401) ásamt sérmerktu bílastæði í bílakjallara og 25 fm svölum með glæsilegri fjalla og sjávarsýn.
Íbúðin er skemmtilega hönnuð, glæsilegt bjart og opið alrými með stórum gólfsíðum gluggum á tvo vegu, falleg eldhúsinnrétting með rúmgóðri eyju, útgengt á 25 fm2 svalir, tvö baðherbergi, tvö svefnherbergi, þar af er hjónaherbergi með fataherbergi og sér baðherbergi,
þvottaherbergi er innan íbúðar. 
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er birt stærð 125,8  fm2, þar af er 11,4  fm2 geymsla. 
  • Aukin lofthæð
  • Gólfsíðir gluggar
  • 25 fm svalir
  • Sérsmíðaðar innréttingar í öllum rýmum
  • Quartz steinn á borðplötum og undirlímdir vaskar
  • Vandað efnisval í tækjum og gólfefnum 
  • Gólfhiti
  • Afar snyrtileg og glæsilega hönnuð lóð með fallegri kvöldlýsingu
  • Hellulagðir / steyptir göngustígar sem að hluta til eru með snjóbræðslukerfi

Nánari upplýsingar veitir: 
Vilborg Gunnarsdóttir lgfs.,  s. 891 8660 eða vilborg@domusnova.is


Lýsing íbúðar:
Forstofa: Góð með stórum fataskáp sem nær til lofts
Eldhús: Falleg innrétting með eyju, góðu skápaplássi,Quartz steinn á borðplötum, undirfelldur vaskur, ofn í vinnuhæð, span helluborð í eyju., innfelldur ísskápur og uppþvottavél. Útgengt á 25 fm svalir. 
Stofa og borðstofa: Opin og björt með stórum gólfsíðum gluggum á tvo vegu og fallegu útsýni til fjalla og sjávar.
Hjónaherbergi:  Rúmgott og bjart með gólfsíðum glugga, fataherbergi er innaf herbergi með vönduðum fataskápum sem  ná til lofts, baðherbergi er einnig innaf hjónaherbergi.
Svefnherbergi  Rúmgott með fataskáp sem nær til lofts
Baðherbergi 1: Flísalagt gólf og veggir að hluta, walk inn sturta, vönduð innrétting með steinborðplötu og niðurfelldum vaski, handklæðaofn, upphengt salerni. 
Baðherbergi 2: Inn af hjónaherbergi, flísalagt gólf og veggir að hluta, walk inn sturta, vönduð innrétting með steinborðplötu og niðurfelldum vaski, handklæðaofn, upphengt salerni, gluggi. 
Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og flísalögðu gólfi. 
Geymsla: 11,4 fm2 merkt íbúðinni í kjallara.
Bílastæði: Sér bílastæði í upphituðum bílakjallara merkt B 041
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum. Flísar á votrýmum og parket á aðalfötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

Húsið: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko.
Verktaki: GG verktakar.
Hönnuðir: Húsið er hannað af ARKÞING Arkitektum. 


Hverfið:
Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Í næsta nágrenni er eftirfarandi þjónusta: Verslun, skóla, leikskóla og íþróttamannvirki. Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2530341
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
41
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.190.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 2024
125.8 m2
Fasteignanúmer
2530341
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Númer eignar
01
Húsmat
86.480.000 kr.
Lóðarmat
8.770.000 kr.
Fasteignamat samtals
95.250.000 kr.
Brunabótamat
74.600.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
237.4 m2
Fjölbýlishús
32
497 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V2 íb 303
Bílastæði
Vesturvin V2 íb 303
101 Reykjavík
204.2 m2
Fjölbýlishús
312
526 þ.kr./m2
107.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 103
Bílastæði
Vesturvin V1 íb 103
101 Reykjavík
252.8 m2
Fjölbýlishús
312
472 þ.kr./m2
119.200.000 kr.
Skoða eignina Kambasel 47
Bílskúr
Skoða eignina Kambasel 47
Kambasel 47
109 Reykjavík
218.7 m2
Fjölbýlishús
624
546 þ.kr./m2
119.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin