Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Helgamagrastræti 48 - Vel skipulögð 3ja herbergja neðri hæð í tvíbýli á góðum stað á neðri brekkunni- stærð 64,3 m².Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu/búr og sameiginlegt þvottahús.
Nánari lýsing:
Forstofan er með harðparketi á gólfi og fatahengi.
Stofan er björt og með harðparketi á gólfi.
Eldhúsið er með L-laga innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp, harðparketi á gólfi og góðum borðkrók. Inn af eldhúsinu er lítil geymsla/búr.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi. Í stærra svefnherberginu er góður fataskápur.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja, lítilli innréttingu með handlaug, sturtu með glervængjum og opnanlegum glugga.
Þvottahúsið er sameiginleg og þaðan er einnig gengið út í sameiginlegan garð.
Annað:- Sérbílastæði fylgir eigninni sunnan við húsið
- Rúmgóður og gróinn garður í sameign.
- Góð staðsetning, þar sem stutt er í leik- og grunnskóla sem og verslunarmiðstöðina við Glerártorg.
- Vel skipulögð eign þar sem allir fermetrar nýtast afar vel.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.