Fasteignaleitin
Skráð 22. apríl 2026

Skagamýri 12 íbúðar-landbúnaður

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-805
Verð
14.900.000 kr.
Fasteignanúmer
25217217
Húsgerð
Jörð/Lóð

FASTEIGNASALAN BÆR og Vilborg G Hansen s.895-0303 lgf kynnir:  Mjög vel staðsett íbúða- og landbúnaðarlóð, 2,18 ha að stærð í Skagamýri í landi Stóru-Borgar í Grímsnes- og Grafningshreppi.  Landið er staðsett vestarlega í landi Stóru-Borgar og er sunnan Biskupstungnabrautar og liggur niður með Höskuldslæk.  Stutt í skóla, leikskóla, sund og golf.  Aðkoman er frá Biskupstungnabraut.  Á landinu er kominn skúr frá Kofar og hús 14.44 fm sjá hér sem heitir Naust.  Búið er að tvíplægja lóðina sem er mjög vel staðsett innan svæðisins og vegur með henni á tvo vegu.  Ekki er búið að tengja rafmagn eða vatn.  Rafmagn og kalt vatn er við lóðamörk og kaupandi greiðir heimtaugagjald. 

Nánari upplýsingar hjá Vilborgu G. Hansen löggiltum fasteignasala síma 895 0303 eða á vilborg@fasteignasalan.is 

Í deiliskipulagi frá 2012 er gert ráð fyrir blönduðu íbúðar- og landbúnaðarsvæði.. Heimilt er samkv. deiliskipulagi að vera með auk búskapar takmarkaða þjónustu og léttan iðnað sem einkum þjóni ferðaþjónustu eða frístundabyggðum. Hér getur verið um að ræða veitinga- og gistiþjónustu (sbr.ferðaþjónustu bænda), þjónustuiðnað vegna viðhalds og uppbyggingar sumarhúsabyggðar og verktakaþjónustu. Heimilt er að byggja á lóðinni allt að 320 fm íbúðarhús og útihús samkvæmt framangreindu s.s. hesthús og skemmur allt að 500fm, og gróðurhús af óskilgreindri stærð.  Heitt og kalt vatn verður verður við lóðarmörk. Rarik hefur lagt stofnlögn fyrir rafmagn á svæðið og heimtaug að lóðamörkum lóðanna og kaupandi hverrar lóðar greiðir heimtaugagjald samkvæmt gjaldskrá Rarik. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Bæjarfasteignir ehf
www.fasteignasalan.is

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tildruslóð landbúnaðarlóð
Tildruslóð landbúnaðarlóð
801 Selfoss
Jörð/Lóð
19.000.000 kr.
Skoða eignina Vestra-Geldingaholt 2
Vestra-geldingaholt 2
804 Selfoss
Jörð/Lóð
22.000.000 kr.
Skoða eignina Heiðarland 2
Skoða eignina Heiðarland 2
Heiðarland 2
801 Selfoss
15 m2
Jörð/Lóð
527 þ.kr./m2
7.900.000 kr.
Skoða eignina Undirhlíð 54
Skoða eignina Undirhlíð 54
Undirhlíð 54
805 Selfoss
Jörð/Lóð
6.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin