VEL SKIPULAGT PARHÚS AÐ SANDBAKKI 26, HÖFN Í HORNAFIRÐI.
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, Sími:
588-4477, Snorri Snorrason, Lg.fs. Sími:
895-2115 - snorri@valholl.is, kynna til sölu eignina Sandbakka 26, 780 Höfn í Hornafirði.
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð í parhúsi, byggt árið 1993, með verönd og garði. Íbúðin er 79,5 m² að stærð. Stórt og gott bílastæði, snyrtileg, hellulögð stétt fyrir framan eignina ásamt verönd og skjólveggjum.
Herbergjaskipting:
Forstofa: Dúkur á gólfi og fataskápur.
Þvottahús: Dúkur á gólfi, ljós innrétting, stálvaskur og þvottasnúra. Aðgangur að geymslurými (ekki með fullri lofthæð), í kjallara undir þvottahúsi og anddyri.
Gangur og hol: parket á gólfi og góður fataskápur.
Stofa: Parket á gólfi, glæsilegt útsýni úr stofugluggum og pallinum til vesturs í átt að jökli.
Eldhús: Parket á gólfi, upprunaleg innrétting, Electrolux eldavél, AEG háfu, stálvaskur og nýleg blöndunartæki. Flísar á vegg milli eldhússkápa,
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi með fjórfaldur fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt, hvít baðinnrétting með efri skápum, hvít hreinlætistæki, baðkar með sturtu.
Ekkert formlegt húsfélag er í húsinu.
Endurbætur/framkvæmdir sem núverandi eigandi hefur farið í:
- Skipt um gólfefni í eldhúsi 2023.
- Eldhúsinnrétting máluð árið 2021.
- Gluggarammar að innanverðu og innihurðar lakkaðar og málað árið 2020.
- Garðurinn hefur verið þökulagður og girðing sett umhverfis lóðina að norðan og austan megin.
- Nýr þrýstijafnari settur árið 2021.
- Sett nýtt gólfefni, harðparket, á bæði svefnherbergin ár 2022