Fasteignaleitin
Opið hús:13. ágúst kl 16:30-17:30
Skráð 10. ágúst 2026

Skólavörðustígur 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
130.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
103.900.000 kr.
Fermetraverð
795.559 kr./m2
Fasteignamat
103.950.000 kr.
Brunabótamat
80.350.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1948
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2233598
Landnúmer
222128
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Gluggar / Gler
Gluggar í stofu endurnýjaðir. Tvöfallt gler
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna: Afar glæsilega, bjarta og mikið endurnýjaða 130,6 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð að Skólavörðustíg 3, 101 Reykjavík. Íbúðin skartar aukinni lofthæð og stórfenglegri gluggasetningu sem teygir sig meðfram öllu alrýminu. Húsið var teiknað árið 1948 af Einari Sveinssyni arkitekt, einum áhrifamesta hönnuði íslensks fúnkisarkitektúrs.
Komið er inn í húsið um snyrtilegan sameiginlegan inngang og stigahús með fallegu Terrazzo-gólfi, en aðeins er ein eign á hverjum stigapalli. Alrými íbúðarinnar er opið og stórborgarlegt þar sem fúnkisarkitektúrinn mætir nútímalegum lífsstíl í samhljómi.


Íbúðin skiptist í opið alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö rúmgóð svefnherbergi (annað með útgengt á svalir), smekklega endurnýjað baðherbergi ásamt 30,2 fm sérgeymslu í kjallara.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða á hreidar@betristofan.is

Eignin Skólavörðustígur 3 er skráð sem hér segir hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (FMR): Eign 223-3598, birt heildarstærð 130,6 fm, þar af er sérgeymsla í kjallara merkt 0002 skráð 30,2 fm. Lóðin er eignarlóð, 139,0 m².

Nánari lýsing:
Stigapallur: Stigahúsið er með fallegum stiga og stigapalli með Terrazzo-gólfi. Stigapallurinn er rúmgóður.
Alrými: Rúmgott, bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús renna saman í eina heild. Gluggaröðin í alrýminu er einstaklega tilkomumikil, stór og samfelldur gluggi sem teygir sig nær endilangan útvegginn. Gulu, ávalu súlurnar sem standa meðfram gluggaröðinni eru ekki einungis burðarvirki heldur þjóna sem hönnunarstef í rýminu, ramma inn mismunandi svæði og gefa íbúðinni sterkan fúnkiskarakter.
Stofa: Bjart og glæsilegt stofurými sem baðar sig í náttúrulegri birtu. Hinn stórfenglegi fúnkisgluggi, umvafinn ávölum ramma og burðarsúlum, tryggir óslitna dagsbirtu og býður upp á heillandi útsýni yfir mannlífið á Skólavörðustígnum.
Borðstofa: Staðsett í miðju alrýmisins og tengir saman stofukrók og eldhús. Rýmið stendur beint við gluggaröðina og er í frábæru flæði við heildina.
Eldhús: Eldhúsið var endurnýjað fyrir um 4 árum á afar smekklegan hátt. Glæsileg og vel hönnuð innrétting nýtir lofthæðina vel með stórum skápum og innbyggðum tækjum. Ljósir efri skápar brjóta upp gráu tónana og gefa hlýlegan svip. Eldhúseyja stendur í miðju rýmisins með helluborði og hangandi gufugleypi yfir. Eyjan býður upp á mikið vinnupláss, hirslur og sætisaðstöðu við barborð. Bakveggurinn er klæddur líflegum vínrauðum flísum sem skapa skemmtilegan retro-kontrast við fágaðar innréttingarnar.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með fataskáp. Gengið er út á svalir úr herbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp og hillum. Herbergið einkennist af glæsilegum, ávölum útvegg með fallegum ávölum glugga.
Baðherbergi: Smekklega endurnýjað. Innbyggður sturtuklefi, upphengt salerni, handklæðaofn ásamt upphengdri viðar borðplötu úr með innfelldum vaski. Upphengdur spegill með innbyggðri LED-lýsingu er fyrir ofan vask.
Geymsla: Rúmgóð 30,2 fm sérgeymsla er í kjallara hússins.

Um húsið og staðsetningu
Húsið var teiknað af Einari Sveinssyni arkitekt sem var einn af áhrifamestu arkitektum Íslands á 20. öld og gegndi m.a. starfi húsameistara Reykjavíkur um langt skeið. Einar átti stóran þátt í að móta ásýnd borgarinnar á árunum eftir stríð og teiknaði mörg af þekktustu fúnkishúsum Reykjavíkur (ásamt t.d. Borgarspítalanum). Ávalur og framstæður gluggaramminn á 2. hæð hússins er mjög dæmigert og fallegt einkenni á hans hönnun, þar sem lögð var áhersla á flæðandi línur og dagsbirtu.

Skólavörðustígur er án efa ein mest heillandi gata Reykjavíkur og býður upp á óviðjafnanlegan lífstíl. Gatan er þekkt fyrir fjölbreytt úrval af sjálfstæðum hönnunarverslunum, gullsmiðjum, listagalleríum, kaffihúsum og hágæða veitingastöðum rétt fyrir utan dyrnar.

Nánari upplýsingar veitir: Hreiðar Levý Guðmundsson, löggiltur fasteignasali Sími: 661-6021 Tölvupóstur: hreidar@betristofan.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/02/202267.750.000 kr.87.700.000 kr.130.6 m2671.516 kr.
31/01/201745.950.000 kr.61.000.000 kr.100.4 m2607.569 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Njálsgata 96
Skoða eignina Njálsgata 96
Njálsgata 96
105 Reykjavík
105.5 m2
Fjölbýlishús
322
900 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 80
Skoða eignina Njálsgata 80
Njálsgata 80
101 Reykjavík
106.2 m2
Fjölbýlishús
323
894 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Hrafnaborg 6
Opið hús:12. ágúst kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hrafnaborg 6
Hrafnaborg 6
190 Vogar
129.4 m2
Fjölbýlishús
514
532 þ.kr./m2
68.800.000 kr.
Skoða eignina Hrafnaborg 6
Opið hús:12. ágúst kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hrafnaborg 6
Hrafnaborg 6
190 Vogar
107.1 m2
Fjölbýlishús
413
598 þ.kr./m2
64.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin