Fasteignaleitin
Opið hús:11. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 7. ágúst 2026

Asparlundur 21

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
168.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
172.900.000 kr.
Fermetraverð
1.028.554 kr./m2
Fasteignamat
124.400.000 kr.
Brunabótamat
85.300.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1973
Garður
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2069277
Landnúmer
118054
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýjar neysluvatnslagnir og nýtt vatnsinntök. Mælagrind og inntök fyrir heitt og kalt vatn endurnýjuð að hluta árið 2021
Raflagnir
Rafmagn endurnýjað að hluta með nýju innlagnaefni fyrir rofa og tengla ásamt uppfærðri rafmagnstöflu.
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gluggakarmar og listar málaðir að utanverðu 2026. Nýtt gler sett í glugga á norðurhlið hússins 2023. Allir gluggar eru upprunalegir
Þak
Árið 2024, Þak endurnýjað á eftirfarandi hátt: Nýr tveggja laga þakpappi. Frágangur við skorstein endurnýjaður. Nýr þakkantur að hluta á suðurhlið. Nýjar þakrennur og niðurföll. Hitastrengir lagðir í niðurföll. Nýjar flasningar að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti á baðherbergjum
Inngangur
Sérinngangur
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Fallegt og mikið endurnýjað 168,1 fm. endaraðhús á vinsælum stað við Asparlund 21, 210 Garðabæ. Þar sem hlýlegt yfirbragð, góð lofthæð í alrýmum og vandaðar innréttingar setja sterkan svip á heildina. Húsið hefur verið uppfært í áföngum á síðustu árum, meðal annars með endurnýjuðu eldhúsi, tveimur baðherbergjum, þakviðgerðum og flottu útisvæði, sem gerir eignina bæði fjölskylduvæna og hlýlega. Eignin er með 4 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum.

Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás  eru í eldhúsi og báðum baðherbergjum. Quartz-steinborðplötur og innbyggðir vaskar eru á báðum baðherbergjum.

Áður var innbyggður bílskúr, en því skipulagi var breytt í íbúðarrými. Húsið er þ.a.l ekki skipulagt í dag eins og upprunlegar teikningar sýna fram á.   

Íbúðarrýmið er bjart og opið með góðu flæði milli eldhúss, borðstofu og stofu. Í eldhúsinu er vönduð viðarinnrétting, stór vinnueyja og falleg lýsing. Út frá stofu og borðstofu er gott samhengi við skjólgóðan garð með hellulagðri verönd, heitum potti og gróðurhúsi, sem gerir eignina sérstaklega aðlaðandi fyrir fjölskyldulíf og samveru allt árið um kring. Garðurinn vísar til suðurs, nýtur góðs skjól og rýmis og umhverfið er rólegt og gróið. 

Smelltu á linkinn til að skoða húsið í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Nánari lýsing:  
Bjart og vel skipulagt endaraðhús með samfelldu flæði milli alrýma, eldhúss og svefn- eða vinnurýma. Komið er inn í bjart og snyrtilegt anddyri með parketi á gólfi og fataskápum. Gangrýmið er opið og tengir saman helstu hluta heimilisins á þægilegan hátt. Eldhúsið er endurnýjað með sérsmíðaðri innréttingu frá Brúnás í bæsuðum viðarlit og eyju í sama við. Vönduð heimilistæki, innbyggður ofn og innbyggð uppþvottavél. Gashelluborð og gott vinnu- og skápapláss, auk góðra birtuskilyrða frá gluggum sem snúa að garði. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingunni. Borðstofan er í opnu sambandi við eldhús og stofu og nýtur mikillar birtu frá stórum gluggum. Rýmið er rúmgott og hentar vel til samveru og gestamóttöku. Stofan er björt og hlýleg með parketi á gólfi, dökkum bitum í lofti og stórum gluggaflötum sem opna rýmið til garðsins. Arinninn í stofunni setur flottan svip á stofuna og tengslin við útisvæðið eru góð.

Svefnherbergin eru fjögur, hjónaherbergið er með parket á gólfi og fataskápum. Svefnherbergi II er barnaherbergi með parket á gólfi, staðsett við hlið hjónaherbergis. Hægt væri að sameina þessi tvö og útbúa fataherbergi fyrir hjónaherbergið á kostnað barnaherbergis. Svefnherbergi III og IV eru björt og rúmgóð herbergi með parket á gólfi, annað þeirra er með fataskáp. 

Það eru tvö baðherbergi í húsinu, þau hafa bæði verið endurnýjað með nýjum flísum á gólfum og veggjum, sérsmíðuðum innréttingum frá Brúnás, quartz-steins borðplötum og innbyggðum vöskum. Þar eru nýleg hreinlætistæki, blöndunartæki og nýjar hurðir. Sturta í báðum baðherbergjum og upphengd salerni. Gólfhiti og opnanlegur gluggi í öðru þeirra. Þvottahúsið er sér með aðstöðu fyrir þvott og frágang, ásamt vaski og tengingum fyrir þvottavél og þurrkara.

Yfir hluta loftsins er geymsluloft sem nýtist vel sem geymsla. Útdraganlegur áfastur stigi. 

Skjólgóður og vel hannaður garður með fjölbreyttum útisvæðum, heitum potti og gróðurhúsi. Timburpallur hefur verið lagður undir gróðurhúsið og skapar afar notalega aðstöðu til útiveru og afslöppunar og nýtist heimilinu stóran hluta ársins. Gróðurhúsið, er um 12 m³ að stærð samkvæmt upplýsingum. Garðurinn er gróinn, skjólgóður og vel skipulagður með fallegri heildarmynd. Þar eru nýjar girðingar á lóðarmörkum og gott jafnvægi milli grasflatar, hellulögn og ræktaðra svæða.

Aðkoma að eigninni er snyrtileg og umhverfið einkennist af rólegri og fjölskylduvænni götumynd. Út frá efri stöðum og garði sést yfir nærliggjandi byggð og gróið umhverfi í hverfinu.

Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja við húsið að sunnanverðu, allt að 4,7 metra frá stoðvegg, að fengnu byggingarleyfi.

Á lóðinni er dreifistöð með sér fasteignanúmeri og henni fylgja hefðbundnar kvaðir um lagnir og aðgengi.

Nánari upplýsingar veita:
Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-





 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/07/202064.500.000 kr.72.000.000 kr.168.1 m2428.316 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grásteinsmýri 1 - íbúð 201
Bílastæði
Opið hús:09. ágúst kl 13:00-13:30
Grásteinsmýri 1 - íbúð 201
225 Garðabær
118.7 m2
Fjölbýlishús
413
888 þ.kr./m2
105.400.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 1 - íbúð 203
Bílastæði
Opið hús:09. ágúst kl 13:00-13:30
Grásteinsmýri 1 - íbúð 203
225 Garðabær
123.2 m2
Fjölbýlishús
312
868 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 1 - íbúð 206
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:09. ágúst kl 13:00-13:30
Grásteinsmýri 1 - íbúð 206
225 Garðabær
120.2 m2
Fjölbýlishús
312
914 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllakór 1-3
Bílastæði
Efsta hæð
Bókið skoðun
Skoða eignina Tröllakór 1-3
Tröllakór 1-3
203 Kópavogur
102.8 m2
Fjölbýlishús
312
777 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin