Opið hús mánudaginn 13. júlí milli kl. 16:30 - 17:15.
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Mjög góð og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbylishúsi sem snýr að Brekkulæk.
Lýsing eignar:Íbúðin er 60,4 fm og snýr öll út í sameiginlegan garð hjá blokkinni.
Hol: Komið er inn í rúmgott hol með mjög góðum fataskápum.
Eldhús: Gengið inn í eldhús úr holi, þar er upphafleg innrétting með massífri beykiborðplötu. Stór gluggi, lítill borðkrókur með áföstu háu borði.
Svefnherbergi: parket á gólfi, útgengt á svalir sem vísa út í garðinn.
Gengt svefnherbergi er snyrtilegt
baðherbergi með baði og nýlegum vask og
blöndunartækjum.
Fyrir enda gangsins er rúmgóð
stofa með parketi á gólfi.
Lítið
þvottahús innan íbúðar
sem var nýlega innréttað.
Íbúðinni fylgir góð
sér geymsla sem er á jarðhæð hússins og þar er einnig sameiginleg hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameiginlega þvotthúsið var málað í hólf og gólf ásamt gólfi í geymslugangi í nóvember s.l.
Húsið var múrviðgert og málað sumarið 2025.
Rafhleðslustöðvar eru á lóð bak við blokkina sem íbúar hafa aðgang að.
Sameign er snyrtileg, teppi á stigagangi endurnýjuð, stigagangur málaður og skipt um dyrasímakerfi í húsinu fyrir nokkrum árum.
Mjög snyrtileg og falleg eign, stutt í verslanir, grunnskóla, listaháskólann, sund og útivistarsvæði.
Góð íbúð á eftirsóttum stað - stutt í alla helstu verslun og þjónustu
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu ingibjorg@hibyli.is
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is