Nýlega eign á Eyravegi 34B, Selfossi. Eignin er á jarðhæð og er fullbúin 2ja herbergja íbúð.
Birt stærð skv fasteignaskrá er 46,4 fm.
Sér inngangur og séreignareitur til vesturs. Nánari upplýsingar veitir: Hörður Sverrisson Lgf. í síma nr 899-5209 eða hordur@palssonfasteignasala.is***Fullbúin nýleg íbúð***
***Sérinngangur***
***Góð staðsetning***
***Hentug fyrsta eign***
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurLýsingÍbúðin er fullbúin með gólfefnum, vínilparket á stofu, eldhúsi og herbergjum og flísar á baðherbergi. Innréttingar í eldhúsi frá HTH.
Tæki í eldhúsi, helluborð, ofn, háfur og uppþvottavél frá Ormsson.
Gólf baðherbergis eru flísalögð. Innrétting með vaski ofan á. Flísalagt í kringum sturtu. Tengi er fyrir þvottavél á baði.
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum. Klætt með litaðri álklæðningu við svalir á völdum stöðum.
Þak er með báru-aluzink klæðningu.
Gluggar eru ál/trégluggar.
Veggir að innan eru sparslaðir, grunnaðir og málaðir í ljósum lit.
Í sameign er hjólageymsla og sameignlegar geymslur.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.