Fasteignaleitin
Skráð 12. júní 2025
Deila eign
Deila

Hrísmóar 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
94.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
800.633 kr./m2
Fasteignamat
66.250.000 kr.
Brunabótamat
45.750.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1984
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2070680
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
11
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Svalir
Tvennar svalir
Lóð
2,51
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá yf.húsfélags.
Kvöð / kvaðir
Almenn kvöð er um hvers konar lagnir bæjarsjóðs eða stofnana hans, sem þörf er á. Sjá lóðaleigusamning.
Betri Stofan Fasteignasala ásamt Hreiðari Levý, lögg fasteignasala kynna fallega og bjarta 94,8fm íbúð á 3.hæð með tvennum svölum í lyftuhúsi að Hrísmóum 1, 210 Garðabær, nánar tiltekið eign merkt 03-03, fastanúmer 207-0680 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Íbúðin er afar vel skipulögð með rúmgóðu og fallegu stofurými með samliggjandi stofu og borðstofu. Glæsilegt útsýni yfir Arnarnesvoginn og út á Bessastaði úr borðstofu. Stofa í góðri tengingu við eldhús. Eldhús með ljósri innréttingu, borðkrók og aflokuðu búri. Útgengt út á suðvestur svalir úr eldhúsi með svalalokun. Innaf anddyri er þvottahús eignar með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt skolvask. Baðherbergi með sturtu, upphengdu klósetti og baðinnréttingu með skápaplássi, vask og stórum spegli fyrir ofan vask. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru innaf stofu með skápum. Útgengt út á norðvestur svalir (kvöldsólin) úr hjónaherbergi. Falleg, björt og opin íbúð á besta stað í Garðabænum með alla helstu þjónustu og verslun í nokkra metra göngufjarlægð.

Eignin Hrísmóar 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-0680, birt stærð 94.8 fm. Þar af er íbúð merkt 01 0303 skráð 90,9fm, geymsla merkt 01 0109 skráð 3,9fm. Þá eru svalir eignar skráðar samtals 16,6fm. Svalafermetrar eru ekki inni í birtum fermetrum.


Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg.fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Fasteignamat eignar fyrir árið 2026 skv. HMS er 72.050.000kr.


Húsið er steinsteypt, teiknað af þeim Herði Bjarnasyni arkitekt og fyrrverandi húsameistara ríkisins og Benjamín Magnússyni arkitekt. Húsið 11 hæðir, byggt árið 1984. Á hæðum 1-9 eru 4 íbúðir á hverjum palli, á 10.hæð eru 2 íbúðir. Sameign hússins er vönduð og vel um gengin. Á jarðhæð hússins er anddyrisbygging með nýlega endurnýjuðum myndavéladyrasíma og mótordrifnum hurðum. Hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð ásamt sérgeymslum íbúða og öðrum sameiginlegum rýmum. Lyfta er í húsinu og næg bílastæði við húsið. Rafhleðslutengingar fyrir bíla eru komnar upp á bílaplani. Öflugt húsfélag sem hefur góðar leigutekjur af íbúð á jarðhæð sem er í eigu húsfélagsins.

Frábær staðsetning við Garðatorg þar sem er að finna afar fjölbreytta verslun og þjónustu í nokkra metra göngufjarlægð, s.s. matvöruverslanir, heilsugæslu, tannlæknastofu, veitingastaði, ísbúð, apótek, snyrtistofa ofl. Skólar á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi í göngufjarlægð ásamt íþróttasvæði Stjörnunar bæði að Ásgarði og í Mýrinni. Leik- og sparkvellir í nágrenninu ásamt sundlaug Garðabæjar. 

Nánari lýsing:

Anddyri: Upphengdir snagar. Gengið inn í þvottahús úr anddyri.
Þvottahús: Innan íbúðar. Innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Neðri skúffur og efri skápar. Skolvaskur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með opinni flísalagðri sturtu, upphengdu klósetti ásamt baðinnréttingu með skápum, vask ásamt stórum spegli fyrir ofan vask. Innbyggð lýsing í innréttingu fyrir ofan spegil.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi. Útgengt út á norðvestur svalir, kvöldsólin.
Svefnherbergi II: Rúmgott með tvöföldum fataskáp.
Stofa: Opin, rúmgóð stofa og borðstofa. Björt með stórum fallegum gluggum til suðvesturs og norðvesturs. Afar fallegt útsýni úr norðvesturglugga yfir Arnarnesvoginn og til Bessastaða. Góð tenging við eldhús.
Eldhús: Ljós innrétting með góðu skápa og vinnuplássi ásamt borðkrók. Ísskápur og uppþvottavél innbyggt í innréttingu ásamt ofni, helluborði og eldhúsvask. Útgengt út á yfirbyggðar suðvestur svalir.
Búr: Innaf eldhúsi. Aflokað með upphengdum hillum
Geymsla: Sérgeymsla eignar á sameignargangi á jarðhæð.

Gólfefni: Parket á öllum gólfum íbúðar að undanskyldu baðherbergi og þvottahúsi sem eru flísalögð.

Lóð og bílastæði:
Lóðin Hrísmóar 1 er 3.567fm leigulóð í eigu Garðabæjar, leigð til 75 ára frá 1. janúar 1982. samkv. lóðaleigusamningi útgefnum þann 26.11.1984, móttekið þann 13.12.1984. Lóðin er óskipt, og hafa allar eignir jafnan afnotarétt af lóðinni sbr. 3.mgr. 34. gr. laga nr. 26/1994. Umhirða lóðar skiptist að jöfnu, en tilkostnaður við lóð skíptist skv. hlutfallstölum. Á lóð eru 36 ómerkt bílastæði á lóð samkvæmt afstöðumynd.

Rafmagnskostnaður:
Í húsinu eru sér rafmagnsmælar eru fyrir hverja eign og 1 mælir fyrir sameign allra. Rafmagn fyrir sameign allar skiptist að jöfnu og deilist jafnt.

Hitakostnaður:
Einn sameiginlegur hitamælir er fyrir húsið. Hitamælir er í inntaksklefa 0148. Húsið eru hituð upp með ofnum. Hitakostnaði fyrir húsið er skipt skv. 22 gr. reglugerő nr. 910/2000 um eignaskiptalýsingar á eftirfarandi hátt: Hitakostnaðar sameignar skiptist jafnt á milli 39 íbúða. Hitakostnaður íbúða skiptist milli 39 íbúða samkvæmt upphituðu brúttórúmmáli séreigna. Hitavatnsmælar eru í inntaksklefa 0148.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/08/201938.000.000 kr.44.500.000 kr.91.7 m2485.278 kr.
23/10/201321.500.000 kr.25.500.000 kr.91.7 m2278.080 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
78.6 m2
Fjölbýlishús
312
953 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hrísmóar 1 - Íb. 603
Opið hús:16. júní kl 17:00-17:30
Hrísmóar 1 - Íb. 603
210 Garðabær
94.7 m2
Fjölbýlishús
313
770 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Bílastæði
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
78.6 m2
Fjölbýlishús
312
953 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 (110)
Bílastæði
Opið hús:16. júní kl 16:00-18:00
Vetrarbraut 2 (110)
210 Garðabær
78.6 m2
Fjölbýlishús
211
950 þ.kr./m2
74.670.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin