LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallegt , mikið endurnýjað og vel skipulagt 5. herbergja 104,3 m2 einbýlishús í rólegu og fallegu hverfi við Skriðustekk 27 sem staðsett er innst í botnlanga. Eigninni fylgir 31,8 m2 bílskúr sem auðvelt væri að breyta í íbúð. Rúmgóð stofa, 3-4 svefnherbergi, stór og fallegur skjólsæll garður í suður með timburverönd með skjólveggjum ásamt 9 m2 útigeymslu. Til austurs er einnig timburverönd með skjólveggjum og þvottasnúrum. Bílaplanið er hellulagt með snjóbræðslu ( ekki tengt ) Helstu endurbætur
* 2014 þakjárn endurnýjað.
* 2014 allir ofnar endurnýjaðir.
* 2020 parket endurnýjað
* 2021 allir rofar og tenglar endurnýjaðir.
* 2021 útihurð endurnýjuð
* 2022 Ný klæðning á suðurhlið endurnýjuð.
* 2022 nýjir gluggar á herbergjum á suðurhlið.
* 2024 svalahurð endurnýjuð.
* Massívar eikarhurðar í öllu húsinu.Nánari lýsing eignar.Forstofa með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Eldhúsið er með mjög snyrtilegri innréttingu með efri og neðri skápum með álplötum á milli skápa , ljúflokanir á skúffum,, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu , helluborð, ofn og vifta, harðparket á gólfi.
Stofa -borðstofa með harðparketi á gólfi og útgengi út á timburverönd með skjólveggjum og þaðan út fallegan gróinn garð með fallegum trjám. Austan við húsið er önnur verönd með skjólveggjum og þvottasnúrum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, innrétting með vaski ofaná, baðkar og sturta.
Þvottahús með flísalögðu gólfi , falleg innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi , innaf þvi er fataherbergi með harðparketi á gólfi og góðum hirslum.
Barnaherbergin geta verið þrjú.
Geymsluloft er yfir hluta af eigninni.
Bílskúrinn var byggður 2006 með steyptu gólfi , heitt og kalt vatn, gluggar , hægt að setja upp baðherbergi, geymsluloft.
Húsið stendur á steyptum grunni , og timburgrind og timburgólf undir stofu og herbergjum.Mjög gott fjölskylduhús á vinsælum stað og með mikla nýtingarmöguleika. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is