Fasteignaleitin
Skráð 4. júní 2025
Deila eign
Deila

Birkihlíð 13

EinbýlishúsVesturland/Akranes-301
150 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
120.000.000 kr.
Fermetraverð
800.000 kr./m2
Fasteignamat
43.800.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
SS
Steinar S. Jónsson
Lögg. fasteignasali
Byggt 2025
Sérinng.
Fasteignanúmer
2333927
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
GARÐATORG EIGNAMIÐLUN OG STEINAR S. JÓNSSON Löggiltur fasteignasali steinar@gardatorg.is KYNNA TIL SÖLU 150 fm HEILSÁRSHÚS MEÐ ÞREMUR SVEFNHERBERGJUM, TVEIMUR BAÐHERBERGJUM OG INNBYGGÐUM BÍLSKÚR. 
Húsið er hannað þannig að útsýni yfir Hvalfjörð njóti sín sem best. Lóðin er birkivaxin, berjalyng og mikið fuglalíf er á svæðinu. Trúlega með fallegustu lóðum sem völ er á, í innan við klukkutíma fjarlægð frá Höfuðborgarsvæðinu. Með tillkomu Sundabrautar mun ferðatími svo styttast til muna. Lóðin er 8986m2 og langt er í næstu hús. Botnlanginn er rólegur, aðeins eitt hús fyrir innan og verða ekki fleiri.

Svæðið er skipulagt frístundahúsasvæði og leigusamningur lóðar er til 95 ára. Sumir eigendur eru með heilsársbúsetu. Þeir geta valið að vera íbúar Hvalfjarðarsveitar, óstaðsettir í hús og njóta lægra útsvars en gengur og gerist.

Hitaveita og ljósleiðari er kominn í hús. Byggingarréttur fyrir 30m2 aukahús er á lóðinni. Bílastæði er stórt. Aðgangsstýring að svæðinu verður sett upp. Aðgengi fyrir sjósport/bát er mögulegt.

Kappkostað var að nota Svansvottað byggingarefni eða efni sem er leyft í Svansvottuð hús.
· Burðarvirki, þak, útveggir og milliveggir úr krosslímdu tré (CLT) frá KLH í Austurríki (www.klh.at)
· Hurðir frá Birgisson /Kährs með smart læsingu, sérpantaðar, extra háar (220cm)
· Gólfhitakerfi með Danfoss stýringu og þráðlausum hitanemum · Hágæða IC Frame ál/tré gluggar frá Idealcombi, (www.idealcombi.dk)
· Gler í gluggum í alrými er með sólvörn (Suncool 70/40) sem viðheldur jöfnu hitastigi í sól (ekki litað gler)
· Baðherbergi flísalögð með stórum Timeless Ceppo Di Gre 80x80cm ítölskum flísum frá Birgisson
· Clipso dúkur í loftum (CE og ISO9001 vottun). Skapar einstaklega góða hljóðvist og laus við ryk- og lyktarmengun. Umhverfisvænt efni sem inniheldur ekki PVC en er með myglu- og bakteríudrepandi      húðun (495DAB). Hentar á votrými sem almenn rými og auðvelt að þrífa. Söluaðili er Pons, (www.pons.is)
· Kährs lúxum vínylparket frá Birgisson. Endingargott og sterkt gólfefni, býður upp á mikla mýkt og er vatnshelt. Áfast undirlag tryggir góða hljóðdempun og smellulæsing gerir mögulegt að leggja parketið    fljótandi en ekki límt
· Innfelld ljós frá Wever@Ducre með Philips LED perum sem endast í 50.000 klst. · Utanhússklæðning frá Ladenburger í Þýsklandi, (www.landerburger.de) Trendfuge Kontrast, Natural Grey · Vandaðar      innréttingar frá Kvik, (www.kvik.dk) Söluaðili: Rafha
· Eldhústæki frá Rafha, Siemens: Stórt spanhelluborð, ofn með innbyggðu hreinsikerfi, innbyggður örbylguofn, innbyggð vifta, uppþvottavél. Innbyggður Samsung kælir/frystir
· Vönduð baðtæki frá Tengi
· Sólpallur með 28x145mm furuborðum (AB vörn). Essve HDS pallaskrúfur sem sjást ekki
· Philips HUE útiljós
· Lagt er fyrir rafmagni fyrir rafstýrðar stofugardínur

Húsið er í raun tæpir 160m2 en er skráð 150m2. Sökklar eru 150 m2 og CLT er sett á ytri brún sökkla. Einangrun og klæðning er sett utan á CLT. Inniveggir eru úr CLT og taka því minna pláss. Nothæft rými er því meira en ef byggt hefði verið hefbundið grindarhús. CLT hús eru laus við rakasperru og hætta á myglu því hverfandi og þekkist varla.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Steinar S. Jónsson lögg. fasteignasali S: 898-5254 steinar@gardatorg.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Akralundur 27
Bílskúr
Skoða eignina Akralundur 27
Akralundur 27
300 Akranes
169 m2
Raðhús
413
686 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Reynigrund 12
Bílskúr
Skoða eignina Reynigrund 12
Reynigrund 12
300 Akranes
186.3 m2
Einbýlishús
514
601 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Eyrarlundur 2
Bílskúr
Skoða eignina Eyrarlundur 2
Eyrarlundur 2
300 Akranes
174.7 m2
Parhús
413
692 þ.kr./m2
120.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin