Fasteignaleitin
Opið hús:06. ágúst kl 17:30-18:00
Skráð 31. júlí 2025
Deila eign
Deila

Jöfursbás 7 A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
70.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
995.726 kr./m2
Fasteignamat
56.500.000 kr.
Brunabótamat
44.850.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Lyfta
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2518539
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir með svalalokun
Lóð
0,81
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á húsfundi 25. september 2024 var samþykkt að veita stjórn heimild til að setja upp myndavélar fyrir utan A blokk sem snýr að út að bílastæðum.
Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður um 425.000 kr. Samþykkt var að aukainnheimta fari fram á eigendur í eitt skipti fyrir kostnaði og mun hún fara fram þegar gengið verður í verkið. Á aðalfundi 2025 var ákveðið að bíða eftir því að klæðning verði fjarlægð og tækifærið verður þá nýtt til að leggja lagnir fyrir myndavélarnar.
Gallar
Húsfélagið er í samskiptum við seljanda hússins vegna ýmissa galla sem eigendur telja seljanda bera ábyrgð á. Á húsfundi 25. september 2024 var sett
saman nefnd í húsfélaginu til að sjá um forsvar gangvart byggingaraðila. Sjá nánar fundargerðir aðalfundar 2024-2025 og húsfundar 25.9.2024.
Fyrirhugað er að framkvæmd fari fram í lok júlí / byrjun ágúst við að skipta út allri gullklæðningu á A blokk vegna galla á klæðningunni. Framkvæmd verður á vegum og á kostnað seljanda hússins.
FRÁBÆR KAUP - Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna einstaklega fallega, bjarta og vel skipulagða 3 herbergja endaíbúð á 3. hæð í einu fallegasta fjölbýlishúsi borgarinnar.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum sem ná til lofts, quartz stein ná borðplötum, undirlímdir vaskar, vönduð hreinlætis og blöndunartæki, falleg og vönduð gólfefni,  harpðarket á alrými og herbergjum, flísar á gólfi baðherbergis og hluta veggja. Aukin lofthæð ( 280 ) sm.  Svalir með svalalokun út frá stofu sem snúa til suðurs. Einstök fjalla og sjávarsýn er frá húsinu. Afar snyrtileg lóð með fallegum lággróðri, hellulagðir / steyptir göngustígar sem að hluta til eru með snjóbræðslukerfi, falleg kvöldlýsing er á lóðinni. 
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er birt stærð 70,2 fm 2, þar af er 5,4 fm2 geymsla. Fasteignamat næsta árs verður 61.100.000.


Einstök hönnun er á ytra útliti hússins, lóð og aðkomu. Innanhúshönnuður kom að hönnun íbúðarinnar, lögð var mikil áhersla á gæða efnisval og góðar lausnir. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE III, parket og flísar frá Ebson, Quartz steinn frá Technistone er á borðplötum í eldhúsi og baðherbergi.  Eldhústæki eru frá AEG, blöndunartæki frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit. 

Byggingarverktaki hússins er GG verk ehf.  Að utan er húsið klætt með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.


Nánari upplýsingar veitir:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

Lýsing íbúðar:
Forstofa með innbyggðum fataskáp sem nær til lofts.
Eldhús með vandaðri innréttingu og góðu skápaplássi sem nær til lofts, borðplötur úr quartz stein, undirlímdur vaskur, niðurfellt span helluborð, vifta, bakaraofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Stofa björt með stórum glugga, kalkmálaður veggur, útgengi út á svalir með svalalokun sem snúa til suðurs.
Hjónaherbergi kalkmálaðir veggir, góður fataskápur sem nær til lofts. 
Barnaherbergi skrautlistar á veggjum, góður fataskápur sem nær til lofts. 
Baðherbergi fín innrétting með borðplötu úr quartz stein, undirlímdur vaskur, speglaskápur á vegg fyrir ofan innréttingu, walk inn sturta, tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. 
Geymsla í kjallara er 5,4 fm2 sérgeymsla.
Hjóla og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl 

Stutt er í helstu þjónustu, s.s.  verslanir, skóla, leikskóla og íþróttaiðkun. Verslunarmiðstöðin Spöngin er í næsta nágrenni þar sem eru matvöruverslanir, veitingastaðir, vínbúð, apótek, heilsugæsla o. fl.  Egilshöll er einnig í næsta nágrenni ásamt golfvelli Korpúlfstaða. 



Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/07/202350.900.000 kr.61.900.000 kr.70.2 m2881.766 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gullengi 31
Gullengi_31-15.jpg
Skoða eignina Gullengi 31
Gullengi 31
112 Reykjavík
85.1 m2
Fjölbýlishús
3
857 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Gullengi 31
Gullengi_31-15.jpg
Skoða eignina Gullengi 31
Gullengi 31
112 Reykjavík
85.1 m2
Fjölbýlishús
3
857 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
80.6 m2
Fjölbýlishús
211
867 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hamravík 28
Skoða eignina Hamravík 28
Hamravík 28
112 Reykjavík
88.1 m2
Fjölbýlishús
312
793 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin