Fjölskylduhús stór garður góð staðsetning upplýsingar veitir Sigrún Matthea lgf., 695-3502 eða á email sms@remax.is
Viltu fá söluyfirlit sent strax
Hér getur þú skoðað eignina í 3D
Sigrún Matthea lgf., hjá RE/MAX kynna: Fallegt rúmgott fjölskylduhús, Lyngbrekka 23 Kópavogi, parhús á pöllum innst í botnlanga. Stór garður sem snýr í suður / vestur / norður. Stutt að sækja í leik og grunnskóla, ýmsa þjónustu og verslanir, íþróttasvæði eða í útivist í Fossvogsdal. Eignin er mikið endurnýjuð ma. lagnakerfi, rafmagn, hitakerfi, gólfefni, innréttingar og baðherbergi voru endurnýjuð.
Síðari ár hafa gluggar, þakgluggar, þakrennur og ytra viðhald einnig verið tekið markvisst í gegn.Fallegt útsýni er úr eign yfir Fossvogsdal og Esjuna. Eign á mjög góðum stað í Kópavogi. Stór og björt stofa / borðstofa fallegt útsýni úr stofu / borðstofu, arinn í stofu, 4 svefnherbergi, eldhús með borðkrók, endurnýjað baðherbergi og þvottaherbergi. Stærð eignar samkvæmt HMS er 146,1 m2
Áætlað fasteignamat fyrir árið 2027 er kr. 110.500.000,- Nánari lýsing:Forstofa: Fataskápur flísar á gólfi.
Hol: Harðparket á gólfi, skóskápur og spegill fylgja ekki með í kaupum á eign.
Eldhús: Innrétting gott skápa og vinnupláss, tæki endurnýjuð, góður borðkrókur, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Fataskápar, harðparket á gólfi .
Baðherbergi: Innrétting HTH vegghengt salerni, walk in sturta, baðkar innfelld bað og sturtutæki frá Tengi, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottaherbergi: Skápar og vaskur í innréttingu HTH flísar á gólfi.
Úr holi er gengið upp í stofu / borðstofu Stofa / Borðstofa: Bjart rými, mjög hátt til lofts, mjög fallegt útsýni er úr stofu / borðstofu yfir Fossvogsdal og Esju, fallegur arinn, svalir út frá stofu, harðparket á gólfi.
Úr holi er gengið niður í svefnherbergi Svefnherbergi II: Harðparket á gólfi, geymslurými er inn af herbergi, hægt að ganga út í bakgarð úr þessu herbergi.
Svefnherbergi III: Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi IV: Harðparket á gólfi.
Geymsla: Geymsla er inn af svefnherbergi II, stærð 11m2 er óskráð rými og ekki í m2 stærð eignar.
Garður / lóð: Stór garður fylgir eigninni, stór suðurgarður og einnig er hægt að njóta kvöldsólar í góðum garði vestan megin við húsið.
Samkvæmt eigendum þá er búið að endurnýja eftirfarandi árin 2021–2022 * Skólp- og frárennslislagnir endurnýjaðar ásamt brunni
* Allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar
* Ný hitagrind og varmaskiptir sett upp
* Snjóbræðslukerfi uppfært í lokaða hringrás með frostlegi
* Rafmagn endurnýjað: ný rafmagnstafla, nýlagnir og tenglar
* Gólfplata í geymslu endursteypt og lækkuð
* Öll gólfefni og innihurðir endurnýjuð
* Nýtt teppi lagt í stiga
* Öryggisglershandrið sett upp innanhúss
* Loftklæðning endurnýjuð með innbyggðri lýsingu
* Ný útidyrahurð að aftan
* Sér þvottahús útbúið með vandaðri HTH innréttingu
* Forstofuskápur frá HTH
* Fataskápar í tveimur herbergjum endurnýjaðir
* Baðherbergi algjörlega endurnýjað með HTH innréttingu
* Gólfhiti lagður á efri hæð og þrír ofnar endurnýjaðir
* Dren lagt við norður- og vesturhlið
* Eldhústæki endurnýjuð
árið 2023* Gluggi í hjónaherbergi endurnýjaður
* Lofttúður settar á þak
árið 2024* Handrið við útitröppur pússað og málað
* Hitaþráður í þakrennu endurnýjaður
árið 2025* Allir fjórir þakgluggar endurnýjaðir
* Þakrennur og niðurföll endurnýjuð
* Gluggar á vesturhlið lagfærðir og málaðir, svalahurð einnig
* Vesturhlið hússins máluð
* Settur nýr fataskápur í hjónaherbergi
* Útilýsing yfirfarin og lagfærð
árið 2026 * Hluti glugga lakkaðir að innan
Þetta er falleg eign á frábærum stað í Kópavogi. Eign sem vert er að skoða. Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Matthea lgf. í síma 695-3502 sms@remax.isÍ lögum um fasteignakaup lög nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800,- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.