VALBORG kynnir í einkasölu: Heiðmörk 35B, Hveragerði.
Stúdíóíbúð á jarðhæð með sérinngangi.
Íbúðin er 46,8 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin telur forstofu, baðherbergi, svefnherbergi og alrými sem í er eldhús-borðstofa-stofa.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu, þar er fatahengi.
Alrými með stofu og eldhúsi. Parket er á alrými og svefnaðstöðu.
Eldhús með nýlegri, hvítri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, helluborði, bakarofni og háf.
Baðherbergi er nýlegt. Þar er upphengt wc, innrétting með handlaug, sturtuklefi, handklæðaofn og gert ráð fyrir þvottavél.
Baðherbergi er flísalagt og þar er gluggi.
Svefnherbergi er opið inn í stofu.
Eignin er í fjölbýlishúsi með sérinngangi. Í eigninni eru sjö íbúðir.
Fyrir framan íbúðina er hellulagt bílastæði.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.