Möguleg skipti á minni eign á höfuðborgarsvæðinu.
BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ Guðný Þorsteins í síma 771-5211 eða á netfanginu gudnyth@remax.is.
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU ÞESSA FALLEGU EIGN
SMELLTU HÉR OG SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D (ekki er þörf á frekari forriti til þess)
Hvernig skoðar þú eign í opnu húsi ? Smelltu hér
Smelltu hér og fáðu söluyfirlit samstundis
RE/MAX ásamt Guðnýju Þorsteins, löggiltum fasteignasala, kynnir í einkasölu: Tignarlegur sumarbústaður/heilsárshús með stórum sólpalli og heitum potti í rólegu og fallegu umhverfi við Borgarleyni 10, Miðengi í Grímsnesi, stutt frá Selfossi. Eignin er 168,2m² að stærð, þar af 60m² bílskúr. Hluti af húsgögnum fylgir með. Eignarlóðin er 8.000m² að stærð, vel gróin með fallegu birki, mosa og hrauni. Aðkoma er með símahliði.
Helstu kostir eignarinnar:
Rúmgóð eign með aukinni lofthæð á efri hæð, samtals 168,2m² að stærð.
Staðsetning: Rólegt og fallegt umhverfi í Grímsnesi, nálægt náttúruperlum eins og Þingvöllum, Gullfossi, Geysi og Kerinu.
Sólpallur: 115m² stór sólpallur með skjólveggjum, heitum potti og útgangi út á grasflöt.
Bílskúr: 60m² bílskúr með hita í gólfi og rafdrifinni hurð.
Viðhald: Húsið hefur fengið reglulegt viðhald, þar á meðal endurnýjun á þaki, smíði stiga og viðarvörn á húsinu.
Nánari lýsing á húsinu:
Neðri hæð: Rúmgóð
forstofa með flísum og hita, stórt
fjölskylduherbergi með fataskáp, gangur/hol í opnu rými með
bílskúr,
baðherbergi/þvottahús með sturtu.
Efri hæð: Eldhús með góðu skápaplássi og tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Björt
stofa og
borðstofa með útgengi á sólpall.
Þrjú herbergi, tvö með fataskápum.
Baðherbergi með sturtu og útgangi á sólpall.
Í nágrenninu eru veitingastaðir, sundlaugar, golfvellir og sögufrægir staðir. Fallegar gönguleiðir eru í nágrenni.
Nánari upplýsingar og bókanir á skoðun veitir Guðný Þorsteins í síma 771-5211 eða á netfanginu gudnyth@remax.is.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.