** Opið hús þriðjudaginn 20. október frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og björt 126,7 m2, 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi, með glæsilegu útsýni, við Sunnukrika 3A í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 126,7 m2, þar af íbúð 116,2 m2 og geymsla 10,5 m2. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Stofan er mjög rúmgóð og möguleiki væri að bæta við auka herbergi. Sérgeymsla er í kjallara. Stórar svalir með fallegu útsýni. Frábær staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ, örstutt í verslun og þjónustu. Krikaskóli er í hverfinu og Íþróttasvæðið að Varmá skammt frá. Sameiginleg bílastæði eru á lóð með hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er með parket á gólfi og stórum fataskápum.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Gestasnyrting er með vegghengdu salerni, handlaug og flísum á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, blástursofn, helluborð og vifta.
Stofa og borðstofa er í opnu björtu opnu rými með parket á gólfi. Mögulegt er að bæta við auka herbergi í stofu. Úr stofu er útgengt á svalir í norðaustur átt með fallegu útsýni.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu, handlaug, vegghengt salerni og sturta.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Er skráð 10,5 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsi á lóð.
Verð kr. 84.500.000,-