Bil 0108 við Smiðjuveg 12A í Vík.
Aðeins eitt bil eftir.
Bilið verður afhent fullbúið.
Byggingarlýsing:Smiðjuvegur 12A, Vík, -geymslu- og iðnaðarhús
Lóðastærð: 1594m2
Um er að ræða 60fm. geymslu og eða iðnaðarbil.
Húsið er á einni hæð, samtals 540fm. að grunnfleti og skiptist í níu einingar.
Í hverju bili verður geymslu/vinnusvæði og aðstöðurými auk snyrtingar.
Byggingin samræmist deiliskipulagi á svæðinu.
Húsið er byggt upp úr límtrérömmum á steyptum grunni og klætt stálsamlokueininum.
Undirstöður, grunnplata og grundun:Undirstöður og gólfplata úr járnbentri steinsteypu, grundað á burðarhæfu efni.
Einangrað undir plötu með 100mm einangrun.
Einnig er einangrað niður með utanverðum sökklum.
Útveggir og þak:Uppbygging verður með límtrérömmum og verða útveggir klæddir með stálklæddum 105mm steinullareiningum.
Milliveggir á milli eininga verða með sambærilegum einingum. Þak verður klætt með 173/129mm stálklæddum steinullarsamlokueiningum.
Léttir innveggir verða byggðir upp úr timbri klæddir tvöföldu gifsi eða annari innanhúsklæðningu. Útveggir og þak verða í hvítum lit.
Gluggar og hurðir:Gluggar og gönguhurðir verða við og áli.
Í gler verður tvöfalt K-gler.
Hurðir og gluggaprófílar verða í hvítum lit.
Iðnaðarhurðir verða rafdrifnar.
Gólf:Gólf verða vélslípuð og lökkuð.
Loftræsting verður um opnanleg fög í gluggum ásamt vélrænni loftræstingu.
Lagnir:Hitakútur verður fyrir neysluvatn.
Frárennsli tengt frárennsliskerfi bæjarins.
Raflagnir verða ýmist utanáliggjandi eða í veggjum, lagðar í/með veggjum og loftum.
Niðurföll skv. teikningu með vatnshalla.
Nánari upplýsingar um frárennsli og því sem viðkemur því mun koma fram á lagnateikningum.
Möguleiki verður á að setja upp tengibúnað fyrir rafbíla við
bygginguna.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala ehf. - sími: 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., email: runar@helgafellfasteignasala.is