Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Sigríður kynna glæsilegt og einstaklega fjölskylduvænt endaraðhús á einni hæð við Laxatungu 153 í Mosfellsbæ.
Gott flæði milli rýma, mikil lofthæð í aðalrými og náttúruleg birta.
Húsið er teiknað af arkitektastofunni ARK.
* Lokuð verönd til suðurs og vesturs með heitum potti og lýsingu í skjólveggjum.
* Útgengi úr hjónaherbergi út á pallinn
* Rúmgóð svefnherbergi, 2 baðherbergi
* Gólfhiti er í öllu húsinu
* Innfelld lýsing í loftum
* Bílskúr með 25 fm geymslulofti
Birt stærð samkv. Fasteignaskrá Íslands er 207 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2024 er 123.350.000 kr.
Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.isKíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða
á InstagramNánari lýsing:
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/ borðstofu, 2 baðherbergi, annað með þvottaaðstöðu, 4 svefnherbergi, pallur, bílskúr með 25 fm. milliloft.
Forstofa er með sexföldum fataskáp sem nær upp í loft.
Miðrými er bjart og hátt til lofts.
Eldhús er með L-laga innréttingu við glugga og stórri eyju sem hægt er að sitja við. Gott skápapláss og bakarofn í vinnuhæð.
Stofa / borðstofa eru í opnu flæði með eldhúsi, parket á gólfi í stofu og borðstofu. Góð lofthæð, gólfsíðir gluggar og útgengt út á veröndina.
Hjónaherbergi er rúmgott eða 18,8 fm með parket á gólfi og fataskápum. Útgengt út á verönd.
Herbergi 2 er með parket á gólfi, nýtt sem skrifstofa í dag.
Herbergi 3 er með parket á gólfi og fataskápum.
Herbergi 4 er með parket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi 1 er með baðkari, stór spegill með baklýsingu, upphengt wc, handklæðaofn og glugga með opnanlegu fagi.
Baðherbergi 2 er með þvottaaðstöðu og innréttingu með góðu skápaplássi, handlaug, upphengt wc, handklæðaofn og walk-in sturta.
Bílskúr er skráður 34 fm samkv. FMR. Innkeyrsluhurð með rafmagnsstýringu og 25 fm milliloft sem nýtist sem góð geymsla.
Snyrtileg aðkoma er að húsinu, upphitað og hellulagt bílaplan að framan. Gróður í góðri rækt. Verönd með lýsingu skjólveggjum að innan og utan. Lítill garður utan skjólveggja með fánastöng sem hægt er að flagga við hátíðleg tilefni.
Húsið er steinað og samkvæmt eiganda nýbúið að síla það.
Eignin er mjög björt og allur frágangur til fyrirmyndar. Bæði hús og garður hafa fengið gott viðhald í gegnum árin.
Hér er smá umfjöllun sem birt var á vef Umhverfis Skipulag og Ráðgjöf sem hönnuðu garðinn.
Örstutt er í leikskólann og skólabíll keyrir börnin í hverfinu í grunnskólann. Frábær útivistarsvæði allt í kring.