Fasteignaleitin
Skráð 6. apríl 2026

Leirutangi 11A

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
155.4 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
131.900.000 kr.
Fermetraverð
848.777 kr./m2
Fasteignamat
110.500.000 kr.
Brunabótamat
84.900.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2083962
Landnúmer
124856
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta. Í baðherbergi (2021)
Raflagnir
Upprunalegt. Hús byggt 1986
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta. Í baðherbergi (2021)
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta. Málaðir að utan 2024
Þak
Upprunalegt. Hús byggt 1986
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Viðarverönd í garði
Lóð
50
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti í stofu, forstofu og anddyri
Inngangur
Sérinngangur
Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna einstaklega fallegt og vel hannað 4ja herbergja, 155,4fm parhús með innbyggðum bílskúr á einni hæð að Leirutangi 11A, 270 Mosfellsbæ. Góð aðkoma að húsi á hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Húsið er steinsteypt, byggt 1986, teiknað af Einari V Tryggvasyni FAÍ. Húsið hefur fengið jafnt og gott viðhald í gegnum árin að innan sem og utan. Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, þvottahús, 3 svefnherbergi, stofurými með samliggjandi stofu og borðstofu, baðherbergi og bílskúr. Útgengt út í garð til suðurs úr stofu. Garður með um 60fm viðarverönd og tyrfðri flöt. Frábær staðsetning í fjölskylduvænu og grónu hverfi. Stutt í vinsælar gönguleiðir, útivistarsvæði, gólfvöll, skóla, sundlaug, líkamsrækt, íþróttasvæði UMFA o.fl.

Eignin Leirutangi 11A er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 208-3962, birt stærð 155.4 fm.

Afar gott skipulag þar sem komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með fataskápum. Innaf forstofu er gengið inn í eitt svefnherbergjana ásamt gestasalerni og þvottahús. Úr þvottahúsi er innangengt í bílskúr. Úr forstofu er komið inn í afar fallegt og opið stofurými. Stofurýmið er einstaklega fallegt, opið og bjart, með mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum. Úr stofu er gengið út í bakgarð hússins, út á um 60fm viðarverönd. Stofa er opin við borðstofu og eldhús. Afar gott flæði á milli rýma. Útfrá stofu er herbergjagangur þar sem gengið er í 2 svefnherbergi og baðherbergi.


Framkvæmdir síðustu ára:
2021: Gólfhiti lagður í forstofu, gestasalerni og stofu.
2021: Gólfefni endurnýjað í öllu húsinu.
2021: Baðherbergi standsett frá grunni og endurhannað.
2021: Gestasalerni standsett.
2024: Eldhús endurnýjað.
2024:
 Hús málað að utan
2024: Hús málað að innan.
2025: Pallur pússaður og lakkaður.

Forstofa:
Rúmgóð, fallegar flísar með terrazzo mynstri á gólfi og fataskáp. Gengið í eitt svefnherbergjana, gestasalerni, þvottahús og stofu úr forstofu. Gólfhiti.
Gestasalerni: Uppgert á vandaðan hátt með upphengdu salerni, nettri baðinnréttingu með vask og spegli fyrir ofan vask. Gólfhiti.
Þvottahús: Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnubekkur með innbyggðum skolvask. Upphengdar hillur. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með þreföldum fataskáp.
Stofa: Afar falleg opin og björt stofa með mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum. Gólfhiti í gólfi. Útgengt út í garð á 60fm viðarverönd. Stofa opin við borðstofu.
Borðstofa: Opin og í góðri tengingu við bæði stofu og eldhús. Fallegur gluggi með djúpri gluggakistu sem getur nýst sem bekkur.
Eldhús: Falleg inrrétting með innbyggðum ískáp, vask, ofni og spanhelluborði. Aðstaða fyrir uppþvottavél. Endurnýjað 2024. Góð tenging við borðstofu og stofu.
Herbergjagangur: Gengið inn úr stofu. 2 svefnherbergi og baðherbergi innaf herbergjagangi.
Baðherbergi: Standsett árið 2021 á afar vandaðan og smekklegan máta. "Walk in" sturta með innbyggðum blöndunartækjum og glervegg. frístandandi baðkar með innbyggðum blöndunartækjum. Baðinnrétting með skúffum, fallegum borðvask, innbyggðum blöndunartækjum og stórum fallegum hringlaga spegli með innbyggðri lýsingu fyrir ofan vask.
Svefnherbergi II: Innaf herbergjagangi. Rúmgott með tvöföldum fataskáp.
Svefnherbergi III: Innaf herbergjagangi. Rúmgott með innbyggðum fataskáp með rennihurðum.

Garður: Fallegur garður aflokaður með trám og viðargirðingu. 60fm viðarverönd til suðurs.
Bílskúr: Innangengt í bílskúr úr húsi. Rafdryfin bílskúrshurð. 

Aðkoma: Innkeyrslan að húsi er hellulögð með snjóbræðslukerfi. Leiðir beint að aðalinngangi og bílskúr, sem gerir alla aðkomu að húsinu mjög þægilega og aðgengilega.

Leirutangi er eitt af þessum hverfum í Mosfellsbæ sem sameinar á einstakan hátt kyrrðina í náttúrunni og nálægðina við þjónustu. Hverfið einkennist af lágreistri byggð, aðallega einbýlishúsum og parhúsum. Það er lítið um gegnumakstur, sem gerir göturnar öruggar fyrir börn og skapa rólegt yfirbragð.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/11/201849.750.000 kr.70.400.000 kr.155.4 m2453.024 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Leynisbraut 8
Bílskúr
Skoða eignina Leynisbraut 8
Leynisbraut 8
300 Akranes
167.9 m2
Raðhús
413
655 þ.kr./m2
110.000.000 kr.
Skoða eignina Brekadalur 12
Bílskúr
Skoða eignina Brekadalur 12
Brekadalur 12
260 Reykjanesbær
245.5 m2
Einbýlishús
624
566 þ.kr./m2
138.900.000 kr.
Skoða eignina Miðhús 0
Bílskúr
Skoða eignina Miðhús 0
Miðhús 0
250 Garður
218.8 m2
Fjölbýlishús
623
503 þ.kr./m2
110.000.000 kr.
Skoða eignina Fitjaás 12
Bílskúr
Skoða eignina Fitjaás 12
Fitjaás 12
260 Reykjanesbær
207.3 m2
Einbýlishús
54
535 þ.kr./m2
110.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin