Fasteignaleitin
Skráð 19. maí 2026

Sólbrekka 22

EinbýlishúsNorðurland/Húsavík-640
342.6 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
86.650.000 kr.
Brunabótamat
147.400.000 kr.
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2153274
Landnúmer
150677
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Talið í lagi
Raflagnir
Talið í lagi
Frárennslislagnir
Talið í lagi
Gluggar / Gler
Talið í lagi
Þak
Talið í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Lögeign kynnir eignina Sólbrekka 22, 640 Húsavík

Sólbrekka 22 er sérlega glæsilegt 342,6 M² einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er vel skipulagt með sex svefnherbergjum og baðherbergi á bæði efri og neðri hæð. Mjög fallegt útsýni er úr húsinu yfir bæði bæinn og út á flóa. Bílskúr er á tveimur hæðum og er rafdrifin bílskúrshurð á efri hæð skúrsins. Stór verönd er í kringum hús með m.a. heitum potti. Húsið hefur fengið gott viðhald bæði að utan og innan.

Nánari lýsing
Efri hæð (142,9 M²): Forstofa, hol, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, borðstofa og setustofa.
Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu með stórum viðarlituðum fataskáp. Inn af forstofunni tekur við hol. 
Hol: tengir saman öll rými á efri hæðinni ásamt því að stigi niður á neðri hæðina er í holinu.
Borðstofa og setustofa: er í opnu rými með holinu sem gefur rýminu gott flæði. Niðurlímt gegnheilt parket á setustofunni sem er með stórum gluggum með flottu útsýni og útgengt út á svalir. Borðstofan er flísalögð. 
Tvö svefnherbergi: eru bæði staðsett inn af holinu á herbergisgang. Fataherbergi er inn af einu svefnherbergjana. 
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, sturta, vegghengd wc, handklæðaofn og viðarlituð innrétting með háum skáp við hliðin á. 

Neðri hæð (142,9M²): Alrými, Þvottahús, Baðherbergi og fjögur svefnherbergi.
Alrými: þegar komið er niður stigan tekur við parketlagt alrými sem tengir saman öll herbergi á neðri hæðinni, einnig er útgengt út á timburverönd með heitum pott. 
Þvottahús: Er mjög rúmgott, flísalagt og með stórri innréttingu sem nær endilangt yfir allt herbergið, Lagnagrindin fyrir húsið er inn í innréttingunni. Auka útgengi er í þvottahúsinu. 
Baðherbergi: Er mjög rúmgott. Búið er að endurnýja baðherbergið á sérlega smekklegan hátt með flísum í hólf og gólf, viðarlitaðri innréttingu, Walk in sturtu og infrared saunaklefa. 
Fjögur svefnherbergi: öll með parketi á gólfi, fataskápum og hjónaherbergið með fataherbergi inn af. 
Gólfefni er parket, sem er á allri hæðinni og stiga. 

Að utan: Munstursteypa fyrir framan og ausan megin við hús. Timburstigi á báðum hliðum sem gerir aðgengi að húsinu gott. gróinn garður að aftan ásamt timburverönd með heitum pott. 
Bílskúr (56,8 M²): Er með rafdrifni bílskúrshurð. Epoxy lakkað gólf á efri hæðinni, við endan í bílskúrnum er stigi niður á neðri hæð bílskúrsins sem er flísalagður og með útgengi út í garð. 
Annað
- Þak og þakskyggni var endurnýjað um 2008.
- Nýjir gluggar settir í húsið um 2010.
- Baðherbergi á neðri hæð endurnýjað að öllu leyti árið 2007.
- Pípulagnir endurnýjaðar að stórum hluta árið 2007. 
- Hús málað að utan og innan 2021.
- Bílskúr hefur breytt með þeim hætti að gryfju var lokað, og neðri hæð útbúinn og er þar útgangur út í garð. 
- Þvottahús var endurnýjað nýlega og voru þá lagnir yfirfarnar á ný.
- Saunaklefi var settur á baðherbergi nýlega.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lögeign
www.logeign.is

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hryggjarás 30
Bílskúr
Skoða eignina Hryggjarás 30
Hryggjarás 30
221 Hafnarfjörður
272.2 m2
Einbýlishús
8
551 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurgata 21
Skoða eignina Norðurgata 21
Norðurgata 21
801 Selfoss
59.5 m2
Einbýlishús
211
1040 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Tröllhólar 43
Bílskúr
Skoða eignina Tröllhólar 43
Tröllhólar 43
800 Selfoss
223.7 m2
Einbýlishús
625
581 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 35
Skoða eignina Suðurgata 35
Suðurgata 35
220 Hafnarfjörður
90.5 m2
Einbýlishús
312
941 þ.kr./m2
85.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin