Fasteignaleitin
Opið hús:12. mars kl 17:00-17:30
Skráð 20. nóv. 2024

Kinnargata 21

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
154.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
172.900.000 kr.
Fermetraverð
1.119.094 kr./m2
Fasteignamat
120.700.000 kr.
Brunabótamat
108.870.000 kr.
Mynd af Erling Proppé
Erling Proppé
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2523823
Landnúmer
212000
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Byggt 2023
Raflagnir
Byggt 2023
Frárennslislagnir
Byggt 2023
Gluggar / Gler
Byggt 2023
Þak
Byggt 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðvestur svalir & Suður verönd
Upphitun
Gólfhiti / loftskiptikerfi
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Lokaúttekt er ekki búin en þar komu m.a. athugasemdir v. leikvöll sem vantar á lóðina og brunavarnahurð í bílskúr, verið er að vinna í því. 
Erling Proppé & REMAX kynna Stórglæsilega 4ra herbergja íbúð með rúmgóðum svölum með glæsilegu útsýni og sólpalli í mjög vönduðu og fallegu fjölbýli á besta stað í Urriðaholtinu Garðabæ. 

Kinnargata 21 er 7 íbúða fjölbýli á fjórum hæðum ásamt lokuðu bílastæðahúsi. Innanhúsarkitektinn Elín Thor sá um hönnun á öllum íbúðum ásamt sameign og er útkoman heldur betur glæsileg þar sem engu hefur verið til sparað

-//- Aukin lofthæð
-//- Glæsilegar vandaðar innréttingar, Miele tæki og Quartzite á borðum
-//- 20,2 fm suð/vestur svalir með glæsilegu útsýni í Heiðmörk og Snæfellsjökul
-//- Um það bil 70 fm sólar verönd til suðurs með heitum potti
-//- Gólfhiti & loftskiptikerfi 
-//- Burstað og lakkað Chevron parket á gólfi í alrými og herbergjum
-//- Innbyggt hátalarakerfi og rafdrifið gardínu kerfi
-//- Free@home stýrikerfi þar sem hægt að er stilla alla lýsingu, tónlist, gólfhita og gardínur

- SMELLTU HÉR TIL AÐ FARA Á SÖLUVEF ÞAR SEM ÞÚ SÉRÐ VIDEO OG GETUR NÁÐ Í SÖLUYFIRLIT FYRIR EIGNINA - 


Allar nánari upplýsingar hjá Erling Proppé Lgf. s. 6901300 & Erling@remax.is 

Íbúðin er 4ra herbergja á 2 hæð og skiptist í: 2 baðherbergi, 3 svefnherbergi, eldhús, borðstofa, stofa/setustofa, þvottahús og geymslu í sameign ásamt bílastæði í bílastæðahúsi. 

Nánari lýsing: Loftskiptikerfi ásamt gólfhita með stýringum í hverju rými og í gegnum free @ home. 
Forstofa: Stór og góður fataskápur.
Eldhús: Gott skápa og borðpláss ásamt fallegri eyju, búr skápur með lýsingu. Innréttingin er frá Fagus. Borðplötur eru sérsmíðaðar úr gráæðóttum Quartzite náttúrustein. Undirlímdur gull-litaður vaskur af gerðinni Gessi frá Ebson, span helluborð á eyju og 2 innbyggðir ofnar frá Miele. innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél.
Alrými: Opið og bjart rými með útgengi út á 20,2 fm suð/vestur svalir, útsýni á Snæfellsjökul og út í Heiðmörk.
Hjónasvíta: Rúmgott með útgengi út á ca 70 fm sólpall til suðurs með heitum potti. 
   - Baðherbergi: Er inn af hjónasvítu með frístandandi baðkari af gerðinni Lusso frá Ebson, "Walk in" sturta með innbyggðum blöndunartækjum af gerðinni Gessi, sérsmíðaður vaskur úr stein með innfelldum blöndunartækjum, upphengt salerni, hvítæðóttar flísar á veggjum 270x120 og gráar flísar á gólfi 120x60 frá Ebson. 
   - Fataherbergi: með fallegum skápum með innfelldri lýsingu og glugga. 
Herbergi: Rúmgott með góðum fataskáp.
Herbergi: Rúmgott með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Gráar flísar á gólfi 120x60 og hvítæðóttar flísar á veggjum 270x120 frá Ebson, innbyggð blöndunartæki í sturtu, upphengt salerni og sérsmíðaður vaskur úr stein með innfelldum blöndunartækjum.
Þvottahús: Gráar flísar á gólfi 120x60 frá Ebson, falleg þvottahúsinnrétting og vaskur.
Geymsla: 7,5 m2 og er í sameign.
Bílastæði: Fylgir í lokuðu bílastæðahúsi.
Sameign: Falleg sameign er í húsinu.

Niðurlag: Stórglæsileg og vönduð eign þar sem gæði eru í fyrirrúmi, sjón er sögu ríkari. 

Kinnargata 21 er 7 íbúða fjölbýli á fjórum hæðum ásamt lokuðu bílastæðahúsi. Húsið er í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:  Erling Proppé lgf //  690-1300 // erling@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/07/202477.250.000 kr.130.000.000 kr.154.5 m2841.423 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2023
Fasteignanúmer
2523823
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
2
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.170.000 kr.

Myndir (62)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klapparstígur 14
Klapparstígur 14
101 Reykjavík
76.4 m2
Fjölbýlishús
312
962 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Skoða eignina Lindargata 35
Bílastæði
Skoða eignina Lindargata 35
Lindargata 35
101 Reykjavík
120.8 m2
Fjölbýlishús
312
1010 þ.kr./m2
122.000.000 kr.
Skoða eignina Kjarrás 9
Bílskúr
Skoða eignina Kjarrás 9
Kjarrás 9
210 Garðabær
287.6 m2
Einbýlishús
725
935 þ.kr./m2
269.000.000 kr.
Skoða eignina Vindakór 3
Bílastæði
Skoða eignina Vindakór 3
Vindakór 3
203 Kópavogur
129.9 m2
Fjölbýlishús
413
715 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin