Fasteignaleitin
Skráð 16. mars 2025
Deila eign
Deila

Kirkjuteigur 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
53.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.500.000 kr.
Fermetraverð
1.093.458 kr./m2
Fasteignamat
49.900.000 kr.
Brunabótamat
26.900.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1942
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2018824
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta. Endurnýjað undir húsi og út í götu.
Gluggar / Gler
Yfirfarnir fyrir nokkrum árum. Þarf að skipta um nokkur gler. Glerin eru til
Þak
Ekki vitað.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Lóð
17,57
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega, sjarmerandi og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð með sérinngagni að Kirkjuteig 5, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 201-8824 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin skiptist í anddyri, gang, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi (minna skráð sem geymsla skv. teikningu) og stofa. Húsið er byggt árið 1942 og er fimm íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara. Húsið stendur á stórri, grónni og fallegri hornlóð í vinsælu og rólegu hverfi í Teigunum í Reykjavík. 

Hér má sjá videó af eigninni!

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is

Frábær staðsetning í borginni með Laugardalinn í göngufjarlægð, eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykvíkinga,
 enda er svæðið einstaklega heppilegt fyrir útiveru, skjólgott og gróðursælt með vel skipulagða göngu- og hjólastíga. Leikskólinn Hof og Laugarnesskóli er þá í aðeins nokkra mínútna göngufjarlægð. Laugardalurinn er jafnframt ein meginmiðstöð íþróttaiðkunar í Reykjavík og er þar að finna íþróttamannvirki svo sem Laugardalshöllina, Laugardalsvöllinn, Laugardalslaugina og Skautahöll Reykjavíkur. Glímufélagið Ármann og Knattspyrnufélagið Þróttur hafa sameiginlega æfingaaðstöðu í Laugardal sem tekin var í notkun árið 2007 og þar er æfingaaðstaða fyrir fimleika, frjálsar íþróttir, glímu, júdó, lyftingar, taekwondo o.fl Þá er frábær aðstaða fyrir líkamsræktaraðstað World Class Laugum í aðeins nokkra mínútna göngufjarlægð. 

Hér má lesa betur um Laugardalinn á vef Reykjavíkurborgar


Eignin Kirkjuteigur 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-8824, birt stærð 53.5 fm. Allir séreignarfermetrar eru innan eignar.

Lóðin: Kirkjuteigur 5 er 1.229fm leigulóð. Lóðin er leigð til 75 ára frá 1. maí 2016 - 1. maí 2091. Á lóðinni er 3 bílastæði, óskipt og í sameign allra eignahluta. 


Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina þar sem ma.:
Klæðning hússins endurnýjuð fyrir c.a. 13 árum. 
* Gluggakarmar voru yfirfarnir og lagfærðir fyrir nokkrum árum
* Skólp endurnýjað 2015.
* Drenað í kringum húsið 2015.

Hitakostnaður: Eitt hitaveituinntak sem kemur inn í þvottahús merkt nr. 0005 er sameiginlegt fyrir allar eignir í húsinu og þar er einn sameiginlegur mælir fyrir heitt vatn. Hitakostnaði er skipt í réttu hlutfalli við upphitað brúttómál. Hlutfall eignar er 18,66%

Nánari lýsing:
Anddyri: Gengið inn um sérinngang. Snagar á vegg.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. "Walk in" sturta með sturtuhengi, nýleg blöndunartæki. Klósett, baðskápur, vaskur fyrir ofan skáp og spegill. Upphengdir snagar.
Gangur: Tengir saman öll rými eignar.
Eldhús: Nýlega endurnýjuð innrétting með neðri skápum og opnum hillum, eldavél og háf yfir hellum. Borðkrókur.
Svefnherbergi I: 6,5fm að gólfleti. Gott barnaherbergi. Skráð sem geymsla skv. teikningu.
Svefnherbergi II: 11,1fm að gólfleti. Rúmgott með fataskáp.
Stofa: Björt og falleg stofa.

Gólfefni: Nýlegt harðparket á öllum gólfum að undanskyldu anddyri og baðherbergi sem eru flísalögð.

Sameign: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús, hver með sína vél.

Afar falleg og sjarmerandi 3ja herbergja íbúð með sérinngangi í fallegu húsi á stórri og gróinni endalóð. Afar vinsælt hverfi í fallegu og grónu hverfi  með íþrótta og útivistarparadísina í Laugardalnum í nokkra mínútna göngufjarlægð. Leik og grunnskóli í nánasta nágrenni, Ásmundarsafn ásamt fjólbreyttri verslun og þjónustu allt í kring.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/05/202447.100.000 kr.53.000.000 kr.53.5 m2990.654 kr.
21/06/202341.250.000 kr.39.500.000 kr.53.5 m2738.317 kr.
26/04/202132.400.000 kr.35.500.000 kr.53.5 m2663.551 kr.
21/11/201415.250.000 kr.19.900.000 kr.53.5 m2371.962 kr.
18/07/200711.320.000 kr.14.700.000 kr.53.5 m2274.766 kr.
10/05/200711.320.000 kr.14.000.000 kr.53.5 m2261.682 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðarárstígur 38
Rauðarárstígur 38
105 Reykjavík
65.1 m2
Fjölbýlishús
312
920 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Bríetartún 18
3D Sýn
Opið hús:24. mars kl 17:30-18:00
Skoða eignina Bríetartún 18
Bríetartún 18
105 Reykjavík
68.7 m2
Fjölbýlishús
312
872 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Skaftahlíð 10
Opið hús:25. mars kl 16:00-16:30
Húsið
Skoða eignina Skaftahlíð 10
Skaftahlíð 10
105 Reykjavík
62 m2
Fjölbýlishús
211
915 þ.kr./m2
56.700.000 kr.
Skoða eignina Eskihlíð 22
Skoða eignina Eskihlíð 22
Eskihlíð 22
105 Reykjavík
64 m2
Fjölbýlishús
312
936 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin