Miklaborg kynnir: Glæsilega 144,9 fm íbúð við Háteigsveg 32, 105 Reykjavík í húsi teiknuðu af Halldóri H. Jónnsyni arkitekt. Húsið er byggt 1946 og er staðsett í hljóðlátu hverfi á höfuðborgarsvæðinu nálægt Kjarvalsstöðum og Klambratúni, í stuttu færi frá miðbænum, allri helstu þjónustu og skólum á öllum stigum. Einstaklega fallegt hús og vel við haldið í gegnum tíðina. Um er að ræða vel rúma þriggja herbergja eign með tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, stofu og borðstofu, sér þvottahúsi og baðherbergi. Útgengt er úr stofu í fallegan sameiginlegan garð þar sem leyfi fylgir þessari íbúð til að byggja 12,8 fernetra garðskála. Eigninni hefur verið breytt frá samþykktum teikningum.
Allar nánari upplýsingar gefur Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Gengið er meðfram hægri hlið hússins inn um sérinngang í íbúðina. Þar er anddyri og gangur með fataskápum, einnig er gengið þaðan í þvotthúsið.
Inn af gangi er stórt opið rými þar sem eldhhúskrókurinn er ásamt holi sem nýtist sem vinnurými í dag. Eldhúsið er nýlega tekið í gegn, fallegar hvítar innréttingar með steingrárri borðplötu, innfeld uppþvottavél og ísskápur, tvöfaldur ofn í vinnuhæð, eldhúseyja og spanhelluborð með innbyggðri viftu.
Stofa og borðstofa eru stúkuð af með léttum veggjum að hluta til. Stór og björt stofa með gluggum á tvenna vegu, nánast gólfsíðir á suðurhlið í alrýminu sem eykur náttúrulegt birtustig í rýminu. Borðstofan er yst í bogadregnu skoti með stórum og miklum gluggum.
Meðfram helstu íverurýmum íbúðarinnar er breiður herbergisgangur með tveimur svefnherbergjum og baðherbergi, á enda gangsins er svo útgengt í sameiginlegan garð hússins. Svefnherbergin eru samliggjandi og eru bæði rúmgóð, stærra herbergið er með glugga á tvenna vegu. Baðherbergið er nýlega uppgert með stórum gráum flísum á veggjum og gólfi, walk-in sturtu, handklæðaofn, upphengdu klósetti, stórum innfeldum spegli og fallegri hvítri innréttingu með handlaug.
Reykt gegnheilt eikarparket er á gólfum í öllum rýmum að undanskildum votrýmum.
Íbúðinni fylgja tvær sérgeymslur í sameign hússins.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma 663 4392 eða kjartan@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 12/04/2018 | 52.800.000 kr. | 71.000.000 kr. | 144.9 m2 | 489.993 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
108 | 135,9 | 98,9 | ||
104 | 276,5 | 215 | ||
101 | 49,9 | 51,5 | ||
105 | 175,6 | 129,9 | ||
101 | 100,1 | 89 | ||
101 | 120,2 | 92,9 |